Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir
Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir

Framkv.stjóri eigna- & aðstöðustýringar

Framkvæmdastjóri eigna- og aðstöðustýringar

Við leitum að öflugum og framsýnum stjórnanda til að byggja upp nýtt stefnumarkandi svið sem hefur það hlutverk að stýra og þróa eignasafn FSRE með hliðsjón af þörfum ríkisins, bæta gæði aðstöðu og lækka kostnað við rekstur eignasafnsins. Meðal lykiláherslna á næstu misserum verður innleiðing langtímaáætlana um nýtingu og þróun eignasafnsins sem og þróun og innleiðing viðmiða í ólíkum eignaflokkum á grundvelli verndargildis eigna og þróunar samfélagsstærða.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stefnumörkun, fjármögnun og þróun eignasafns FSRE í samvinnu við fjármála- og efnahagsráðuneytið
  • Ábyrgð á stýringu eignasafns, frumgreining og mat á fjárfestingakostum, hagkvæmniútreikningar og ákvörðun leigugjalds
  • Ábyrgð og umsjón með kaupum og sölu fasteigna FSRE og öflun ytri leigusamninga
  • Þróun og innleiðing framkvæmda- og fjárfestingaáætlunar ríkisins í samvinnu við fjármála- og efnahagsráðuneytið
  • Samskipti við ráðuneyti, stofnanir og aðra hagsmunaaðila vegna stefnumörkunar
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri, mannauðsmálum og nýsköpun sviðsins sem og stafrænni þróun þess
  • Áætlanagerð, stefnumótun og þátttaka í framkvæmdastjórn FSRE

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. verk-, hag- eða viðskiptafræði. Meistaragráða er kostur
  • Farsæl reynsla af stjórnun og uppbyggingu liðsheildar
  • Reynsla af stýringu fasteignasafna s.s. bygginga, mannvirkja og jarða
  • Reynsla af rekstri og þróun fasteignasafna er kostur
  • Reynsla af gerð fjárfestingaáætlana og samningagerð
  • Reynsla af þátttöku í stefnumörkun á sviði eignastýringar fasteigna er kostur
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar og jákvætt og lausnamiðað viðhorf
  • Þekking á stafrænni þróun er kostur
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti og geta til að miðla efni

Við getum boðið þér:

  • Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa marktæk áhrif á þróun íslensks samfélags
  • Spennandi vinnustað á fleygiferð inn í framtíðina
  • Aðgang að öflugu þekkingarneti norrænna og evrópskra systurstofnana
  • Öflugt stjórnendateymi og markvissa stjórnendaþjálfun
  • Skemmtilega samstarfsfélaga sem elska að hafa gaman
  • Verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlega starfsaðstöðu
Auglýsing birt5. nóvember 2021
Umsóknarfrestur22. nóvember 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 7A, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar