

Framkvæmdastjóri
Nýtt sameinað klasafélag orkugeirans
Í kjölfar sameiningar Orkuklasans, GEORG rannsóknarklasa í jarðhita og Íslenskrar NýOrku, sem eru leiðandi samstarfsvettvangar á sviði endurnýjanlegrar orku, rannsókna og nýsköpunar leitum við að öflugum framkvæmdastjóra til að leiða sameiningu, uppbyggingu og þróun hins sameinaða félags.
Um er að ræða leiðtogahlutverk í uppbyggingu og mótun sameinaðs félags á sviði orkutengdrar starfsemi. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á að leiða starfsemina, framfylgja stefnu og auka verðmætasköpun og samkeppnishæfni aðildarfélaga.
Markmiðið er að byggja upp öflugan og áhrifamikinn samstarfsvettvang sem tengir saman ólíka hagaðila og setur mark sitt á orku- og nýsköpunarumhverfi landsins.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á að:
- móta og innleiða stefnu félagsins og leiða hóp starfsmanna á mismunandi sviðum starfseminnar
- byggja upp öflugan samstarfsvettvang og efla vistkerfi aðildarfélaga
- þróa, forgangsraða og leiða verkefni sem styðja við verðmætasköpun og samkeppnishæfni
- byggja upp og viðhalda traustum tengslum við lykilhagaðila, innanlands og erlendis
- tryggja skýra forgangsröðun, skilvirkan rekstur og mælanlegan árangur
- styðja við uppbyggingu sterkrar menningar og árangursmiðaðrar liðsheildar
Leitað er að leiðtoga sem býr yfir:
- reynslu af stjórnunarhlutverki í flóknum og þverfaglegum verkefnum sterkri stefnumótandi hugsun og getu til að hrinda hugmyndum og stefnu í framkvæmd
- reynslu af því að byggja upp og leiða samstarf milli ólíkra hagaðila
- góðri reynslu af rekstri, fjármálum og áætlanagerð
- hæfni til að leiða breytingar og byggja upp slagkraft í nýju umhverfi
- mjög góðri samskiptafærni og sterkri getu til að skapa traust og trúverðugleika
- þekking og/eða reynsla á sviði klasastarfsemi, orkumála, nýsköpunar eða fjárfestinga er kostur
- háskólamenntun sem nýtist í starfi
Íslenska
Enska




