Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Framkvæmdastjóri

Við leitum að öflugum framkvæmdastjóra í stjórnunar- og leiðtogastarf hjá Iðunni fræðslusetri. Leitað er að framsýnum einstaklingi sem hefur faglegan metnað, frumkvæði, forystuhæfileika, þekkingu á nýsköpun og framúrskarandi samskiptahæfni til að leiða 30 manna hóp starfsmanna. Framkvæmdastjóri sinnir daglegum rekstri Iðunnar og vinnur að framkvæmd stefnu félagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á daglegum rekstri félagsins
  • Leiða sjálfbærnivegferð félagsins
  • Ýta undir nýsköpun og leita að vaxtartækifærum
  • Byggja upp sterkt tengslanet í iðngreinum
  • Styðja við stjórnendur og annað starfsfólk og virkja þekkingu þeirra og innsæi
  • Byggja upp teymisumhverfi
  • Virk samskipti við ytri hagaðila eins og aðildarfélög, starfsfólk í iðngreinum, stjórnvöld í menntamálum, erlenda samstarfsaðilaog fjölmiðla
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðn- og/eða háskólamenntun og reynsla sem nýtist í starfinu
  • Leiðtogahæfni og geta til að skapa sterka liðsheild
  • Brennandi áhugi á þróun þekkingar og færni í iðnaði
  • Reynsla af rekstri og mannauðsstjórnun
  • Geta til að miðla framgangi á gagnadrifinn hátt
  • Framtíðarsýn og stefnumótandi hugsun
  • Hæfni til að hafa jákvæð áhrif á forvitnis- og þróunarmenningu
  • Skilningur og hæfni til að starfa samkvæmt lagalegum og siðferðilegum kröfum í anda sjálfbærni og gilda félagsins sem eru framsækni, virðing og fagmennska
Auglýsing stofnuð15. apríl 2024
Umsóknarfrestur28. apríl 2024
Staðsetning
Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar