Arena
Arena er nýr þjóðarleikvangur rafíþrótta.
Afþreyingarmiðstöð fyrir alla sem hafa gaman að tölvuleikjaspilun. Á staðnum er aðstaða í heimsklassa fyrir leikjaspilun bæði á PC og Playstation 5 bæði í opnu rými sem og í einkaherbergjum. Allar beinar útsendingar á Stöð 2 Esports verða teknar upp í Arena og sendar þaðan út á sérstöku sviði. Jafnframt rekum við Bytes, frábæran veitingastað í rýminu bæði fyrir almenna gesti og leikjaspilara.
---------
Arena is the home of esports in Iceland.
Entertainment area for all those that love computer games. World-class facilities and a great place to work. We also operate a restaurant at the same location called Bytes serving the customers of Arena as well as walk-ins.
Rekstrarstjóri
Arena leitar nú að framtíðar rekstrarstjóra.
Umsóknarfrestur er til 24. maí.
Unnið er úr umsóknum eftir því sem þær berast og eru umsækjendur því hvattir til þess að sækja um sem fyrst.
Heimasíða Arena er https://arenagaming.is/
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórnun & tekjuöflun
- Umsjón með starfsmannamálum, t.d. vaktaplön, þjálfun og verkstýring starfsfólks
- Efla hópinn í að búa til góða upplifun fyrir viðskiptavini
- Viðburðarstjórnun og skipulagning nýrra viðburða
- Markaðssetning, sinna samfélagsmiðlum, o.s.frv.
- Uppsetning og skipulag æfinga og námskeiða í rafíþróttum og samskipti við þjálfara, iðkendur og forráðamenn í samvinnu við yfirþjálfara
- Þátttaka í gerð fjárhagsáætlunar og ábyrgð á eftirfylgni fyrir tekju- og kostnaðaráætlun
- Ábyrgð og umsjón með fjármunum, uppgjör reiðufjár í banka o.s.frv.
- Þjónusta viðskiptavini eftir þörfum
- Stjórnun, birgðahald og samskipti við birgja
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur, t.d á sviði viðskipta eða markaðsmála
- Reynsla af markaðsmálum er nauðsynleg
- Reynsla sem nýtist í starfi er kostur, t.d við afþreyingu, þjónustu eða veitingar
- Reynsla af stjórnunarstörfum og mannaforráðum er kostur
- Leiðtogafærni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð eru skilyrði
- Reynsla af, launa- og/eða kjaramálum er kostur
- Góð íslenska og enska töluð og rituð
- Hreint sakavottorð er skilyrði
Auglýsing stofnuð3. maí 2024
Umsóknarfrestur24. maí 2024
Tungumálakunnátta
EnskaMjög góð
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHreint sakavottorðSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStarfsmannahaldVaktaskipulagViðburðastjórnunÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar