
Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar
Starfið er vaktavinna sem felur m.a. í sér mannaforráð Íþróttamiðstöðvar, umsjón og eftirlit með búnings og baðklefum, sundlaugarmannvirkjum og öðru því sem mannvirkinu tilheyrir. Vinna við ræstingar, afgreiðslu, símavörslu, öryggisgæslu og annað það sem til fellur og tilheyrir starfsemi Íþróttamiðstöðvarinnar.
Forstöðumaður fer með yfirstjórn á daglegri starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar svo og húsrými og tækja. Forstöðumaður gengur 80% vaktir og 20% stjórnunarstörf. Hann sér um að notkun og starfræksla fari fram samkvæmt gildandi reglum og ákvæðum. Hann ber ábyrgð á vel sé gengið um eignir Íþróttamiðstöðvarinnar og að haft sé að leiðarljósi að þær séu skynsamlega nýttar. Hefur umsjón með nemendum og iðkendum gagnvart íþróttakennara/þjálfara á hverjum tíma. Hann sér um að innra vaktaplan sé haldið og stjórnar “Neyðaráætlun” ef að slys kemur upp. Sér um skrásetningu og sýnatöku úr laugum ásamt mælaálestri. Sér um frágang og læsir húsnæði í lok vinnudags.











