Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Starfsmenn í Sundhöll Selfoss

Sveitarfélagið Árborg leitar eftir karlkyns- og kvenkyns starfsmanni í sundhöll Selfoss.

Tvær sundlaugar eru starfsræktar í Árborg, ein á Selfossi og önnur á Stokkseyri. Í Sundhöll Selfoss eru sundlaugar úti og inni, ásamt heitum pottum, köldum pottum, gufubaði, sauna og rennibrautum og í sundlaug Stokkseyrar er útisundlaug þrír heitir pottar, kaldur pottur og sauna. Hjá sundlaugunum starfa á annan tug starfsmanna, fimm starfsmenn á hverri vakt í Sundhöll Selfoss. Laugin er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 06:30 til 22:00 og um helgar frá 09.00 til 18.00. Vinnan hefst mánudaga til föstudaga 05:45 um helgar 08:20 og lýkur 35-40 mín. eftir lokun. Unnið er á tveimur vöktum virka daga en einni vakt um helgar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Laugarvarsla sem felst í öryggiseftirliti og þrifum við laugar bæði úti og inni.
  • Baðvarsla sem einkum er fólgin í þrifum í bað- og búningsklefum auk öryggisgæslu á þeim stöðum.
  • Afgreiðsla þar sem sala í laug og á ýmsum vörum fer fram, símsvörun, upplýsingagjöf, þrif og öryggiseftirlit.
  • Starfsmenn fá námskeið í fyrstu hjálp, björgun og fleiru.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsfólk sundlauga verður að vera orðið 18 ára.
  • Starfsmenn sem sinna laugargæslu skulu árlega standast hæfnispróf skv. III. viðauka reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
  • Stundvísi, vinnusemi og samviskusemi.
  • Góð samstarfshæfni og þjónustulund.
  • Sundlaugar Árborgar eru reyklausir vinnustaðir.
Auglýsing birt24. nóvember 2026
Umsóknarfrestur5. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar