

Forstöðumaður á sambýli í Skaftholti
Sjálfseignarstofnunin Skaftholt óskar eftir að ráða til starfa forstöðumann á sambýli í 100% stöðu frá áramótum.
Helstu verkefni:
· Stjórnun og umsjón fjölþættrar þjónustu í þágu fatlaðs fólks
· Mannaforráð
· Leiðsögn og ráðgjöf til starfsmanna
· Umsjón og gerð vaktaáætlana
· Umsjón yfir bókhaldi og launakjör
· Gerð einstaklingsbundinna þjónustuáætlana
· Samskipti við þjónustunotendur og aðstandendur
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Þroskaþjálfafræði eða hliðstæð menntun
· Starfsreynsla við stjórnun í þjónustu við fatlað fólk
· Góð tölvukunnátta
· Lipurð í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
· Góðir skipulagshæfileikar og frumkvæði
· Sjálfstæði í vinnubrögðum
Skaftholt er heimili í sveit sem hefur í gegnum tíðina byggt stefnu sína á hugmyndum antroposófíu um þroska einstaklings. Áhersla er lögð á að styðja íbúa í daglegu lífi með tilliti til líkamlegra, sálrænna og andlegra þarfa. Sköpun, rytmi og samverustundir eru mikilvægir þættir í umhverfi sem stuðla að sjálfstæði, vellíðan og samfélagslegri þátttöku. Í Skaftholti búa 5 einstaklingar með fatlanir (fjölga um tvo eftir áramót) og sækja þau sér vinnu og dagþjónustu bæði innan og utan heimilisins. Lögð er áhersla á fjölbreyttri og einstaklingsbundinni þjónustu.
Ef þú hefur ekki tök á að keyra í og úr vinnu daglega getum við komist að samkomulagi varðandi gistingu.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Áhugasamir sendi fyrirspurnir og/eða umsókn með ferilskrá á netfangið [email protected].












