
Forstjóri
Rjúfum kyrrstöðuna í uppbyggingu samgönguinnviða á Íslandi
Ert þú nýr forstjóri Ganga og brúar?
Göng og brú ohf., fyrsta innviðafélag sinnar tegundar á Íslandi, leitar að öflugum leiðtoga með skýra framtíðarsýn og hugrekki til að byggja upp nýtt félag sem á að rjúfa kyrrstöðu í uppbyggingu samgönguinnviða á Íslandi. Verkefni félagsins er að fjármagna og flýta framkvæmdum mikilvægra samgönguinnviða öllum til hagsbóta.
Þetta er einstakt tækifæri til að móta frá grunni félag sem stýrir stærstu samgönguframkvæmdum landsins, frá undirbúningi og hönnun gegnum byggingu og yfir í rekstur. Þá er fjármögnun og áhættustýring þessara framkvæmda eitt helsta verkefni félagsins. Forstjóri þarf að hafa hæfni til að hafa heildaryfirsýn og skilja hvernig ákvarðanir á undirbúningsstigi ráða úrslitum um kostnað, áhættu og fjármögnunarkjör þegar á reynir.
Viðkomandi þarf að búa yfir ríkri reynslu, mikilli leiðtogahæfni, góðri samskiptahæfni og getu til að fá fólk með sér í lið, móta öflugt teymi og skapa sameiginlega sýn um uppbyggingu innviða til framtíðar.
Hlutverk og ábyrgð
- Leiða uppbyggingu félagsins og ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun.
- Móta stefnu og framtíðarsýn félagsins í samvinnu við stjórn.
- Tryggja samstarf við ríkisaðila, sveitarfélög og aðra hagaðila.
- Undirbúa stjórnarfundi og fylgja eftir stjórnarákvörðunum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á framhaldsstigi sem nýtist í starfi.
- Árangursrík reynsla af stefnumótun, stjórnun og rekstri.
- Reynsla af stórum fjárfestingar- og framkvæmdaverkefnum.
- Reynsla af fjármögnun og áhættustýringu stórframkvæmda og flókinni samningagerð.
- Framúrskarandi leiðtogahæfni og hæfni til að móta og innleiða framtíðarsýn.
- Geta til að byggja upp sterka liðsheild og öflugt tengslanet gagnvart hagaðilum.
- Frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.
- Mjög góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Um Göng og brú ohf.
Göng og brú ohf. er félag í eigu ríkisins sem nýlega hefur verið komið á fót með það hlutverk að undirbúa, fjármagna og byggja upp mikilvægustu samgönguinnviði þjóðarinnar á sjálfbærum fjárhagslegum grunni.
Meðal verkefna félagsins eru Sundabraut, fjármögnun á nýrri Ölfusárbrú og tvöföldun Hvalfjarðarganga. Hlutverk félagsins er að fjármagna, byggja og reka mikilvæg samgöngumannvirki á sjálfbærum fjárhagslegum grunni og hraða þannig framkvæmdum sem skipta þjóðina miklu máli.
Félagið sækir fjármagn á markaði án ríkisábyrgðar og því er lykilatriði að félagið geti byggt upp traust gagnvart fjárfestum, lánveitendum og stjórnvöldum og tryggt að félagið standi undir sjálfstæðri fjárhagslegri ábyrgð.
Umsóknarfrestur um starfið er til og með 10. ágúst 2026
Við hvetjum áhugasöm til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með ráðningunni hafa Auður Bjarnadóttir ([email protected]) og Hilmar Garðar Hjaltason ([email protected]) hjá Vinnvinn.
Íslenska
Enska