

Forritari Securitas
Við leitum að hugmyndaríkum forritara til að taka þátt með okkur í spennandi vegferð stafrænnar framtíðar.
Um er að ræða fjölbreytt verkefni á sviði hugbúnaðarþróunar og reksturs upplýsingakerfa með öflugu teymi sérfræðinga upplýsingatæknideildar. Helstu verkefni forritara eru hönnun og þróun hugbúnaðarlausna, þarfagreining, forritun og viðhaldi hugbúnaðarkerfa ásamt þjónustu við notendur.
Ef þú…
- Ert með háskólapróf í tölvunarfræði.
- Ert með a.m.k. tveggja ára reynslu af forritun.
- Þekkir og ert með reynslu af SQL, C#, .NET og Azure.
- Hefur þekkingu á REST API og uppbyggingu á vefþjónustum.
- Þekkir til Business Central væri það mikill kostur.
- Hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku og ensku.
... þá erum við að leita að þér!
Um er að ræða 100% starf og er vinnutíminn að öllu jöfnu á opnunartíma félagsins, frá kl 08:00 - 16:00 alla virka daga. Starfið hentar öllum kynjum sem hafa hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 13. maí nk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Rafn Gylfason, deildarstjóri upplýsingatæknideildar ([email protected]).













