Rue de Net
Rue de Net
Rue de Net

Forritari í Business Central

Vegna aukinna verkefna og umsvifa leitum við að metnaðarfullum og drífandi einstaklingum til þess að starfa með okkur. Ef þú hefur áhuga á að vinna á líflegum vinnustað, í framlínu tæknibreytinga og takast á við krefjandi verkefni þá erum við að leita að þér.

Rue de Net er hugbúnaðarhús í upplýsingatækni sem aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við val og innleiðingu á viðskipta- og verslunarlausnum. Rue de Net er á fullri ferð með viðskiptavinum sínum úr skápnum í skýið, með því að bjóða nýjustu tækni, gæðavörur og persónulega þjónustu.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf í verkfræði eða tölvunarfræði
Forritunarreynsla og þekking á Microsoft hugbúnaði
Hæfni og vilji til að setja sig inn í ný kerfi og læra nýja hluti
Samskiptahæfileikar og góð þjónustulund
Frumkvæði og öguð vinnubrögð
Helstu verkefni og ábyrgð
Forritun í viðskiptakerfum Microsoft Dynamics 365 Business Central
Forritun og uppsetning verslunarkerfa LS Retail, t.d. LS Central
Forritun vefverslanakerfa í Microsoft .NET (C#)
Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
Auglýsing birt24. nóvember 2021
Umsóknarfrestur6. desember 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar