EFLA hf
EFLA hf
EFLA hf

Forritari

EFLA leitar að krafmiklum og áhugasömum forritara. Starfið felur í sér margvísleg verkefni í hugbúnaðargerð og sjálfvirknilausnum fyrir viðskiptavini sem og þátttöku í vöruþróun innan fyrirtækisins.

Um er að ræða starf á iðnaðarsviði í fagteymi hugbúnaðarlausna. Verkefni hugbúnaðarlausna eru fjölbreytt og krefjandi. Við streymum gögnum í rauntíma um netið, höldum utan um og miðlum landupplýsingum, þróum framleiðslukerfi fyrir iðnfyrirtæki, þróum og þjónustum Skilríkjaskrá Þjóðskrár Ísland (sem heldur utan um útgáfu vegabréfa og dvalarleyfiskorta), einnig rafræn klippikort og skírteini í Apple og Android farsíma, samþættum kerfi og sinnum ýmsum tilfallandi verkefnum fyrir okkar viðskiptavini. Við þróum gagnagrunns- og veflausnir, sinnum Windows forritun og app forritun á fjölbreyttri flóru stýrikerfa.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði tölvunar-, verkfræði eða annarra raungreina sem nýtast í starfi
Mikil þekking og/eða reynsla í þróun á eftirtöldum forritunarmálum:
C#, TypeScript/JavaScript
Þekking á XAML, Angular/React/Vue, Django og/eða app-forritun er kostur
Brennandi áhugi á hugbúnaðarþróun
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Áhugi og leikni í mannlegum samskiptum
Framúrskarandi hæfni í íslensku og ensku í ræðu og riti
Helstu verkefni og ábyrgð
Fjölbreytt verkefni í hugbúnaðargerð
Sjálfvirknilausnir fyrir viðskiptavini
Þátttaka í vöruþróun hjá fyrirtækinu
Auglýsing birt15. september 2022
Umsóknarfrestur25. september 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar