Fiskistofa
Fiskistofa hefur það meginhlutverk að gæta hagsmuna þjóðarinnar við sjálfbæra nýtingu hafs og vatna. Stofnunin er þjónustu- og eftirlitsstofnun sem annast stjórnsýsluverkefni á sviði sjávarútvegsmála, lax- og silungsveiði, hvalveiðar o.fl. ásamt því að safna upplýsingum um framangreinda málaflokka. Fiskistofa sinnir eftirliti sínu við fisksveiðistjórnun á sex starfsstöðvum á Íslandi.
Fiskistofa óskar eftir að ráða deildarstjóra sjóeftirlits
Fiskistofa óskar eftir að ráða jákvæðan og drífandi einstakling í starf deildarstjóra veiðieftirlitssviðs á Akureyri. Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfið heyrir undir sviðsstjóra veiðieftirlits.
Deildarstjóri sjóeftirlits ber ábyrgð á starfsemi ákveðinna starfsstöðva Fiskistofu og hefur mannaforráð veiðieftirlitsmanna á umræddum starfsstöðum, þ.m.t. verkaskiptingu og daglegum störfum. Hefur yfirumsjón með skipulagningu sjóeftirlits og áætlanagerða í kringum slík verkefni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón á daglegri umsýslu sviðsins í samvinnu með deildarstjóra landeftirlits og sviðsstjóra
- Yfirumsjón með sjóeftirliti
- Afleysing deildarstjóra landeftirlits
- Áætlanagerð, markmiðasetning og eftirfylgni
- Stjórnun og stuðningur við mannauð
- Áhættugreining í þágu veiðieftirlits og áhættustýrðu veiðieftirliti
- Þróun veiðieftirlits og hagnýtingu tækninýjunga í eftirliti
- Samskipti við stjórnvöld og hagaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Skipstjórnarmenntun er kostur
- Þekking og reynsla af sjómennsku og sjávarútvegi
- Reynsla af sjómennsku á vinnsluskipum er kostur
- Farsæl reynsla og/eða menntun í stjórnun kostur
- Frumkvæði, lausnamiðuð nálgun og metnaður til að ná árangri í starfi
- Jákvætt viðmót, lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna sjálfstætt og með öðrum. Seigla og geta til að vinna undir álagi
- Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku og góð hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti
- Mjög góð almenn tölvukunnátta
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt9. september 2024
Umsóknarfrestur27. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
EnskaMjög góð
Staðsetning
Norðurslóð 4, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar