
Skrifstofa Alþingis
Hlutverk skrifstofu Alþingis er að styðja við starfsemi Alþingis svo að þingið og þingmenn geti sinnt hlutverkum sínum samkvæmt stjórnarskrá og lögum. Meginverkefni skrifstofunnar eru að vera forseta til aðstoðar, framfylgja ákvörðunum hans og forsætisnefndar auk ákvarðana á fundi forseta með þingflokksformönnum. Enn fremur að veita alþingismönnum, nefndum og þingflokkum faglega aðstoð og þjónustu, að hafa á hendi almennan rekstur þingsins og stjórnsýslu og að varðveita og miðla upplýsingum um hlutverk og starfsemi Alþingis.

Deildarstjóri fasteignaumsjónar á skrifstofu Alþingis
Skrifstofa Alþingis leitar að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi í starf deildarstjóra fasteignaumsjónar á fjármála- og rekstrarsviði. Í starfinu felst dagleg stjórnun deildarinnar, innkaup og umsjón með húseignum og ýmsum búnaði Alþingis ásamt samskiptum við hagaðila. Við leitum að einstaklingi sem lætur sér annt um eignir þingsins og er lipur í mannlegum samskiptum. Verkefnin eru krefjandi og fjölbreytt á lifandi og skemmtilegum vinnustað.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og eftirlit með rekstri og viðhald á fasteignum, húsbúnaði og lóðum Alþingis
- Áætlana- og samningagerð vegna viðhalds og reksturs eigna
- Kostnaðargreining framkvæmda á vegum þingsins
- Öflun tilboða ásamt samskiptum við verktaka og aðra hagsmunaaðila
- Samantekt og úrvinnsla tölfræðiupplýsinga
- Skipulag daglegra verkefna deildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í byggingafræði eða sambærileg tæknimenntun á háskólastigi
- Iðnmenntun er kostur
- Þekking og reynsla á framkvæmdum og viðhaldi fasteigna og helstu kerfum þeirra
- Reynsla af kostnaðarútreikningum, áætlunar- og samningagerð
- Gagnrýnin og lausnamiðuð hugsun og öguð vinnubrögð
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Mikil færni í mannlegum samskiptum og hæfileikar til samstarfs
- Góð tölvu- og tæknikunnátta, þekking og reynsla á Revit og/eða AutoCAD kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Reynsla og þekking á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur
Auglýsing birt13. september 2024
Umsóknarfrestur23. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Kirkjustræti 10, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AutoCADÁætlanagerðJákvæðniOpinber stjórnsýslaSamningagerðSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðVerkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (6)

Deildarstjóri óskast á íbúðarkjarna
Ás styrktarfélag

Hjúkrunardeildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra
Rangárþing eystra

Fagstjóri fasteigna
Grundarheimilin

Verkefnastjóri í fasteignum og viðhaldi
Landsnet hf.

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Yrkir eignir ehf.