Ás styrktarfélag
Ás styrktarfélag
Ás styrktarfélag

Deildarstjóri óskast á íbúðarkjarna

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum deildarstjóra í 100% starfshlutfall á íbúðarkjarna í Hafnarfirði.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga og þekkingu á faglegri þjónustu við fatlað fólk, býr yfir góðri leiðtogafærni og getur tekið virkan þátt í innra starfi félagsins. Mikilvægt er að viðkomandi hafi stefnu Áss styrktarfélags og góða starfshætti að leiðarljósi í störfum sínum.

Starfið er fjölbreytt og gefur tækifæri til að hafa áhrif á þróun þjónustunnar og taka þátt í spennandi verkefnum í góðu samstarfi við öflugan starfsmannahóp.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Laun er samkvæmt kjarasamningum Áss Styrktarfélags og viðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til 18.nóvember 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veita Bryndís Theódórsdóttir mannauðsstjóri í s. 4140500 og Ásta Hrönn Ingvarsdóttir forstöðuþroskaþjálfi í s. 5513700.

Helstu verkefni og ábyrgð

Ábyrgð á daglegum rekstri, stjórnun og starfsmannahaldi í samstarfi við forstöðumann.

Tryggja að þjónusta og starfsemi sé í samræmi við lög, reglugerðir, stefnu og verkferla Áss styrktarfélags.

Ábyrgð á einstaklingsmiðaðri þjónustu og þjónustuáætlunum í samstarfi við íbúa.

Veita íbúum faglega og einstaklingsmiðaða þjónustu.

Samstarf og samskipti við íbúa, aðstandendur, starfsfólk og aðra samstarfsaðila.

Stuðla að faglegum vinnubrögðum, góðri liðsheild og jákvæðu starfsumhverfi.

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

Góð þekking á málefnum fatlaðs fólks og áhugi á faglegri og einstaklingsmiðaðri þjónustu.

Reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi er nauðsynleg.

Góð samskipta- og samstarfshæfni.

Góð færni í töluðu og rituðu máli.

Góð tölvufærni og góð íslenskukunnátta.

Frumkvæði, sjálfstæði og leiðtogafærni.

Auglýsing birt2. nóvember 2026
Umsóknarfrestur18. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Klukkuvellir 23, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StarfsmannahaldPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.VaktaskipulagPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar