Byko
BYKO rekur eina stærstu byggingavöruverslun landsins í Breiddinni í Kópavogi, auk verslana á höfuðborgarsvæðinu og víða um land.
Saga BYKO hófst árið 1962 þegar Guðmundur H. Jónsson og Hjalti Bjarnason opnuðu fyrstu BYKO verslunina við Kársnesbraut í Kópavogi. Frá upphafi kappkostuðu félagarnir að veita viðskiptavinum sínum, fagmönnum jafnt sem almennum húsbyggjendum, framúrskarandi þjónustu. Þessi gildi frumkvöðlanna lögðu grunninn að uppbyggingu fyrirtækisins sem nú er leiðandi í sölu á byggingavörum hér á landi.
BYKO er fjölskyldufyrirtæki og skilar það sér í menningu félagsins. Hjá BYKO starfar fjölbreyttur hópur fólks af fagmennsku, framsækni og með gleðina í fyrirrúmi. Markmið okkar er ávallt að veita viðskiptavinum okkar og starfsfólki bestu heildarupplifunina af BYKO.
Við hjá BYKO trúum við því að starfsfólkið okkar sé okkar mikilvægasta auðlind til að ná árangri. Því hefur félagið sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun starfsfólks af BYKO sem vinnustað. Lykillinn að því að fá gott starfsfólk til starfa er að hafa gott orðsport, sterka ímynd og vinnustað sem starfsfólk mælir með. Framtíðarsýn okkar vinnur að því markmiði.
Við erum stolt af því að vera vottuð sem frábært vinnustaður af Great Place to Work. Við leggjum áherslu á að stuðla að trausti, vellíðan og helgun meðal okkar starfsfólks og er vinnustaðagreining Great Place to Work okkar verkfæri í þeirri vegferð.
Við leggjum áherslu á að mæta starfsfólki okkar þar sem það er á hverjum tíma. Fríðindi starfsfólks stuðla að heilbrigðari vinnustaðamenningu þar sem er sveigjanleiki og góð samþætting á vinnu og einkalífi.
BYKO hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt og hefur með því skuldbundið sig til að greiða starfsfólki sem sinna sömu eða sambærilegum störfum sambærileg kjör. Félagið undir gengur árlega úttekt af utanaðkomandi óháðum aðila til að viðhalda vottun félagsins.
Við bjóðum starfsfólki okkar upp á:
• Fjárhagslegan styrk í allt að þrjá mánuði í fæðingar- og
foreldraorlofi
• Samgöngustyrk
• Velferðarstyrk
• Aðgang að velferðarþjónustu Heilsuverndar
• Líkamsræktartyrk
• Frí rafbílahleðsla á flestum starfsstöðvum
• Sturtuaðstöðu á starfsstöðvum
• Sveigjanlegt og fjölskylduvænt starfsumhverfi
• Niðurgreiðsla á hádegismat
• Afsláttur á vörum í verslun
• Árshátíð og haustfögnuð
• Jólagjöf og páskagjöf
• Gjafir vegan starfsaldurs
• Fjarvinnu hluta úr viku fyrir störf þar sem það er möguleiki
Stjórnendur og starfsfólk BYKO leggja mikla áherslu á að styrkja starfsemina og bæta þjónustuna við viðskiptavini sína.
Á síðari árum hefur BYKO haslað sér völl erlendis, meðal annars með uppbyggingu á öflugu timburfyrirtæki í Lettlandi. Þar er unnið timbur og timburafurðir auk þess framleiðir verksmiðjan glugga og hurðir úr timbri, svo og álklædda timburglugga.
Svæðisstjóri fagaðila - BYKO Selfoss
BYKO auglýsir eftir svæðisstjóra fagaðila í verslun BYKO á Selfossi. Leitum að öflugum, hressum og duglegum leiðtoga til að aðstoða okkur við að stýra þeim frábæra hópi fólks sem vinnur í BYKO Selfossi.
Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Við leitum að einstaklingi með:
- Reynslu af stýringu hóps
- Þekking og áhugi á byggingarvörum
- Ríka þjónustulund
- Skipulagshæfni
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Íslenskukunnátta, skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Dagleg stýring á starfsfólki svæðis og úthlutun verkefna
- Tryggir að þjónustuviðmót og klæðnaður starfsfólks í sínum deildum sé í samræmi við stefnu félagsins
- Kemur að ráðningum og öðrum mannauðsmálum eftir beiðni og í samstarfi við verslunarstjóra
- Viðheldur og mótar verkferla í samstarfi við starfsfólk og verslunarstjóra
- Samskipti við vöruflokkastjóra, verktaka o.s.frv.
- Þekkir vöruframboð á svæði og upplýsir starfsfólk reglulega um árangur í sölu og framlegð
- Ber ábyrgð á vöruframsetningu í samráði við framstillingarteymi, verðmerkingum og verðbreytingum í sínum deildum
- Eftirlit með birgðum og rýrnun á svæði ásamt þátttöku í sítalningum
- Aðstoð og eftirfylgni við tilboðsgerð vegna vara á ábyrgðarsvæði
- Tekur á móti og vinnur úr kvörtunum viðskiptavina
- Ábyrgð á svæði og nærumhverfi sé hreint og snyrtilegt
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Allar nánari upplýsingar veitir Valgeir Ó. Flosason, (valgeirof@byko.is) verslunarstjóri.
Auglýsing birt10. september 2024
Umsóknarfrestur24. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Langholt 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Lyfja Höfuðborgarsvæðið - Afgreiðsluflakkari
Lyfja
Deildarstjóri í málefnum fatlaðra
Borgarbyggð
Ræstingar / Cleaning
Skógasafn
SÖLUSTJÓRI FAGAÐILA
Byko
Aðstoðarverslunarstjóri á Selfossi
JYSK
Sölu- og þjónusturáðgjafar
Nova
Öryggisgæsla - hlutastarf
115 Security
50% hlutastarf í Kringlu, Smáralind og á Laugaveginum
Flying Tiger Copenhagen
Jólastarfsfólk!
Flying Tiger Copenhagen
Þjónusta í apóteki - Hella
Apótekarinn
Menntasvið leitar að leiðtoga frístundadeildar
Kópavogsbær
Lyftaramaður á grófvörulager
Byko