

Ferðavagnaviðgerðir / Bílaviðgerðir sumar- og framtíðarstarf
Vegna aukinna verkefna ætlum við að bæta við okkur starfsmanni / mönnum.
Starfið felst aðalega í bilanagreiningu og viðgerðum á Truma og Alde miðstöðvum, ísetningu á nýjum miðstöðvum, viðgerðir á eldavélum, ísskápum, hjólabúnað og fleiru fyrir ferðavagna.
Um sumarstarf og framtíðarstarf að ræða. Einnig erum við með almennt bílaverkstæði þar sem okkur vantar líka starfsfólk.
Greining bilana og úrlausnir, viðgerðir og ísetningar.
Almennar viðgerðir / rafmagnsviðgerðir
Önnur tilfallandi verkefni
Reynsla eða menntun í bifvélavirkjun eða almennum viðgerðum áskilin
Heiðarleg, áreiðanleg og vönduð vinnubrögð
Geta sýnt frumkvæði í starfi og unnið sjálfstætt
Gilt bílpróf
Almenn tölvukunnátta
Góð íslensku og enskukunnátta
Við bjóðum uppá sveigjanlegan vinnutíma og góð laun í boði fyrir réttan aðila













