Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Miðbæ

Laust er til umsóknar 80-100% framtíðarstarf félagsráðgjafa við Heilsugæsluna Miðbæ. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. apríl nk. eða eftir samkomulagi.

Um ábyrgðarmikið og krefjandi starf er að ræða og spennandi vettvang fyrir félagsráðgjafa sem hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu. Félagsráðgjafi starfar í þverfaglegu teymi með læknum, hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum og öðru fagfólki í skemmtilegu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun.

Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt í nærumhverfi og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Stöðug þróunarvinna er í gangi með það að leiðarljósi að bæta þjónustu við skjólstæðinga heilsugæslunnar.

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu 
  • Teymisvinna með læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, riturum og sálfræðingum 
  • Einstaklingsbundin viðtöl og ráðgjöf sem lítur að framfærsluúrræðum, félagslegum úrræðum og réttindamálum 
  • Fjölskylduráðgjöf af ýmsum toga 
  • Sértæk ráðgjöf vegna þroskavandamála og annarra atferlisvandamála 
  • Samstarf við aðrar stofnanir og þjónustuveitendur s.s. heilbrigðisstofnanir, þjónustumiðstöðvar, starfsendurhæfingu, TR, SÍ o.fl. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi frá landlækni til að starfa sem félagsráðgjafi skilyrði
  • Víðtæk starfsreynsla og/eða reynsla af sambærilegu starfi skilyrði
  • Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
  • Reynsla og áhugi fyrir þverfaglegri teymisvinnu
  • Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi

Heilsustyrkur
Stytting vinnuvikunar

Auglýsing birt12. febrúar 2024
Umsóknarfrestur26. febrúar 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Vesturgata 7, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar