Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Félagsráðgjafi eða ráðgjafi í félagsþjónustu á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar

Félagsráðgjafi eða ráðgjafi í félagsþjónustu óskast á fjölskyldusvið Fjarðabyggðar

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar auglýsir eftir félagsráðgjafa eða ráðgjafa í félagsþjónustu í 100% starf. Um er að ræða starf í eitt ár með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Ert þú dugmikill einstaklingur með reynslu af félagsráðgjöf, félagsþjónustu eða sambærilegu starfi? Hefur þú brennandi áhuga á að vinna með fólki og styðja börn, fjölskyldur og einstaklinga til aukinna lífsgæða? Vilt þú taka þátt í starfi öflugs og samheldins hóps starfsmanna á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar? Þá erum við að leita að þér.

Fjarðabyggð er öflugt og vaxandi samfélag sem leggur mikla áherslu á velferð og farsæld íbúa sinna. Á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar er lögð áhersla á þverfaglega samvinnu, fagmennsku og stuðning starfsmanna í teymisvinnu við úrlausn fjölbreyttra verkefna. Markmið okkar er að efla lífsgæði, þátttöku og hagsæld einstaklinga og fjölskyldna í sveitarfélaginu.

Helstu verkefni

  • Félagsleg ráðgjöf til einstaklinga og fjölskyldna sem leita til félagsþjónustunnar.
  • Umsjón með stuðningsþjónustu, þar á meðal liðveislu og stuðningi hjá stuðningsfjölskyldum.
  • Mat á þjónustuþörf, eftirfylgd og þróun stuðningsúrræða.
  • Málastjórn í stuðningsteymum vegna farsældar barna.
  • Samstarf við skóla, heilbrigðisþjónustu og aðra samstarfsaðila.
  • Þátttaka í þróun og eflingu þjónustu fjölskyldusviðs.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Starfsréttindi í félagsráðgjöf eru æskileg. Einnig kemur til greina önnur sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi, ásamt reynslu af félagsþjónustu eða ráðgjafarstörfum.
  • Reynsla af starfi innan félagsþjónustu, barnaverndar eða sambærilegra verkefna er kostur.
  • Skipulögð, sjálfstæð og fagleg vinnubrögð.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu.
  • Hæfni til að tjá sig vel í ræðu og riti.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Þekking á One CRM skjalakerfinu er kostur.
  • Hreint sakavottorð.

Við bjóðum

  • Fjölbreytt og gefandi starf þar sem þú getur haft raunveruleg áhrif á líf fólks.
  • Öflugt teymi fagfólks sem styður hvert annað í starfi.
  • Tækifæri til faglegrar þróunar og þátttöku í þróunarverkefnum.
  • Fjölskylduvænt starfsumhverfi og góðan starfsanda.
  • Einstök lífsgæði í Fjarðabyggð þar sem stutt er í stórbrotna náttúru, útivist og öflugt samfélag.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags.

Fjarðabyggð hvetur alla áhugasama til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til 1. júlí 2026.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Nánari upplýsingar veitir:

Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
Netfang: [email protected]
Sími: 470-9015

Auglýsing birt12. júní 2026
Umsóknarfrestur1. júlí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Búðareyri 2, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar