Hringsjá endurhæfing
Hringsjá endurhæfing
Hringsjá endurhæfing

Félagsráðgjafi

Hringsjá endurhæfing óskar eftir félagsráðgjafa til starfa. Leitað er að jákvæðum og skipulögðum félagsráðgjafa í 80 -100% starf eða eftir samkomulagi.

Starfið er fjölbreytt, krefst faglegra vinnubragða, sjálfstæðis í starfi og það væri kostur að viðkomandi þekki til IPS ráðgjafar. Viðkomandi mun taka þátt í mótun nýrra verkefna hjá Hringsjá ásamt því að vinna í þverfaglegu samstarfi á starfsendurhæfingarstöðinni.

Viðkomandi mun starfa í Víðsjá sem er úrræði fyrir ungt fólk á aldrinum 16 – 30 ára. Markhópurinn er NEET – ungmenni (Not in Education, Employment or Training) sem hafa verið vanvirk, eru með skerta færni til samfélagsþátttöku og/eða andlegar hindranir/geðraskanir/taugaþroskaraskanir sem hamla einstaklingi til vinnu eða náms.

Helstu verkefni og ábyrgð

Félagsleg ráðgjöf og umsjón með endurhæfingaráætlunum þátttakenda í Víðsjá. 

Teymisvinna með sérfræðingum Hringsjár.

IPS ráðgjöf og stuðningur. 

Samskipti við þjónustukaupa þ.e. VIRK starfsendurhæfingarsjóð.

Menntunar- og hæfniskröfur

Íslenskt starfsleyfi sem félagsráðgjafi.

Reynsla sem nýtist í starfi. 

Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu.

Hæfni til að þróa og aðlaga þjónustu að fjölbreyttum þörfum þátttakenda. 

Góð íslensku- og enskukunnátta. 

Góð almenn tölvukunnátta. 

Hreint sakavottorð. 

Fríðindi í starfi

Starfsemi fylgir að hluta skóladagatali hjá grunnskólum Reykjavíkur þ.e. páskafrí, jólaleyfi og vetrarleyfi á sama tíma. Vinnuvika fólks í fullri vinnu er 36 stundir.

Auglýsing birt8. júní 2026
Umsóknarfrestur26. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hátún 12, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FélagsráðgjafiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar