
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Félagsleg heimaþjónusta, kvöld og helgar
Okkur vantar starfsmann í félagslega heimaþjónustu á Vitatorgi, þjónustuíbúðir. Um er að ræða 39% starf á kvöld - og helgarvöktum, frá 16 – 22. Vaktaplanið er þannig að unnið er 3 daga í senn og síðan er 6 daga frí. Við leitum að öflugum, hressum og jákvæðum starfsmanni sem hefur áhuga á mannlegum samskiptum. Starfið gæti hentað námsmönnum vel. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til þess að sækja um starfið.
Menntunar- og hæfniskröfur
Góð almenn menntun.
Góð íslenskukunnátta skilyrði.
Reynsla af félagslegri heimaþjónustu æskileg.
Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, sjálfstæð vinnubrögð og vilji til að veita góða þjónustu.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita íbúum persónulega aðstoð og eftirlit.
Veita hvatningu og stuðning til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
Sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi.
Aðstoð við heimilishald.
Auglýsing birt14. september 2021
Umsóknarfrestur30. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)

Starfsmaður ræstingu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Ráðgjafi heim
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi óskast í Skammtímadvöl Árlandi 9
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi óskast á íbúðakjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir MND deild
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Umönnun Droplaugarstaðir
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)

Félagsliði í sértækri heimaþjónustu - Fjölskyldu- og barnamálasvið
Hafnarfjarðarbær

Virkniþjálfi - starfskraftur í dagþjálfun
Hlíðabær

Starfsmaður óskast á Ægisgrund
Garðabær

Starfsmenn í heimaþjónustu í Fjarðabyggð
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar

Aðstoðarmanneskja óskast á Akureyri
NPA miðstöðin

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í hlutastarf
NPA miðstöðin

Verkefnastjóri á Heimili fyrir börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Hlutastarf í Frístundaklúbbnum Úlfinum
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

Óska eftir aðstoðarkonu í fjölbreytt starf
NPA miðstöðin

Stuðningsfulltrúi óskast í Skammtímadvöl Árlandi 9
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Komdu til liðs við okkur á Andrastaði – vantar fólk í aukavinnu
Andrastaðir

Umönnunarstörf - Sóltún Sólvangi í Hafnarfirði
Sóltún heilbrigðisþjónusta