Íslandsstofa
Íslandsstofa
Íslandsstofa

Fagstjóri útflutningsþjónustu

Íslandsstofa leitar að kraftmiklum einstaklingi í nýtt starf fagstjóra útflutningsþjónustu. Starfið felst í að þróa og skipuleggja þjónustuþætti Íslandsstofu við íslensk fyrirtæki í útflutningi í samræmi við útflutningsstefnu Íslands.

Við leitum að skapandi og drífandi starfsmanni sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni á alþjóðlegum vettvangi. Mikilvægt er að hafa reynslu af alþjóðlegri markaðssetningu.

Fagstjóri útflutningsþjónustu vinnur þvert á atvinnugreinar og allar áherslur Útflutnings- og fjárfestingasviðs og heyrir undir forstöðumann sviðsins. Fagstjóri ber ábyrgð á þjónustuleiðum fyrir fyrirtæki og þróar þjónustuframboðið í samstarfi við svið Viðskiptaþróunar.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Umfangsmikil reynsla af markaðsmálum.
Þekking og reynsla af sölu og/eða markaðssetningu á erlendum mörkuðum.
Reynsla af verkefnisstjórnun.
Kostur ef umsækjandi hefur reynslu af ráðgjöf.
Framúrskarandi ensku- og íslenskukunnátta skilyrði, önnur tungumálakunnátta kostur.
Menningarlæsi, frumkvæði, samskipta- og samstarfshæfni, jákvæðni og hugmyndaauðgi.
Mjög góð tölvukunnátta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á þjónustuframboði Íslandsstofu til fyrirtækja í samstarfi við stoðsvið. Kortleggur þjónustuþörf fyrirtækja í mismunandi útflutningsgreinum. Ber ábyrgð á ferli viðskiptavinar (e. customer journey) og stafrænni þróun um þjónustuframboð Íslandsstofu. Er aðaltengiliður við samstarfsaðila Íslandsstofu, Business Sweden, og heldur utan um dagleg samskipti.
Skipuleggur samstarf Íslandstofu við viðskiptafulltrúa, samræmir verklag og vinnur að því að þjónustuframboð á erlendum mörkuðum endurspegli þarfir íslenskra útflutningsfyrirtækja á hverjum tíma, í samræmi við útflutningsstefnu Íslands.
Heldur utan um samstarf við Nordic Innovation House.
Auglýsing birt9. september 2021
Umsóknarfrestur20. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Sundagarðar 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar