Píeta Samtökin
Píeta Samtökin

Fagaðili Píeta samtökin 

Ertu fagaðili með starfsréttindi landlæknis og langar þig til að vinna að fjölbreyttum verkefnum á fjölskylduvænum og hlýlegum vinnustað?

Vegna aukinnar aðsóknar þurfum við fagaðila í 80-100% starf í þverfaglegt meðferðarteymi Píeta samtakanna. Í teyminu eru sálfræðingar, félagsráðgjafar, læknir og iðjuþjálfi.

Píeta samtökin veita gagnreynda meðferð fyrir einstaklinga 18 ára og eldri með sjálfsvígshugsanir og/eða sjálfsskaða. Samtökin bjóða einnig upp á stuðning fyrir aðstandendur í formi viðtala og hópa. Þá sinna þau einnig forvörnum og fræðslu.

Helstu verkefni og ábyrgð

· Áhættumat í ljósi sjálfsvígshættu og/eða sjálfsskaða

· Mat á geðrænum vanda

· Einstaklings- og hópmeðferð

· Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla

· Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

· Þátttaka í þróunarstarfi Píeta

Menntunar- og hæfniskröfur

· Löggild starfsréttindi sálfræðingur / félagsráðgjöf / geðhjúkrun / iðjuþjálfi

· Þekking og reynsla af meðferðarvinnu

· Þekking eða áhugi á Díalektískri atferlismeðferð (DAM) er kostur

· Hæfni í mannlegum samskiptum, hæfni í að vinna sjálfstætt og í teymi

· Hæfni í að halda kynningar og námskeið

· Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í ræðu og riti

· Góð almenn tölvukunnátta

Píeta samtökin eru fjölskylduvænn vinnustaður í hjarta miðborgarinnar. Boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma og lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til endurmenntunar.  Fagteymið vinnur þétt saman og er boðið upp á reglulega handleiðslu.

Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Ólafsdóttir fagstjóri Píeta gunnhildur@pieta.is eða Ellen Calmon framkvæmdastýra Píeta ellen@pieta.is, eða í síma 552-2218

Auglýsing birt31. október 2024
Umsóknarfrestur15. nóvember 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Amtmannsstígur 5A, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar