Stefna hugbúnaðarhús
Stefna hugbúnaðarhús
Stefna hugbúnaðarhús

Erum við að leita að þér?

Stefna leitar að lausnarmiðaðri manneskju sem brennur fyrir forritun og hugbúnaðarþróun til að slást í hóp öflugs teymis forritara sem þjónustar viðskiptavini Stefnu. Við leitum að manneskju sem er fljót að tileinka sér nýja þekkingu og aðferðir, hefur gagnrýna hugsun og ríka þjónustulund. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Stefna sérhæfir sig í stafrænum lausnum fyrirtækja, opinberra stofnana, sveitarfélaga og félagasamtaka. Hjá Stefnu starfar teymi sérfræðinga í öllu sem viðkemur hugbúnaðargerð; greining, hönnun, vefun, forritun og ráðgjöf. Við erum sveigjanleg og útsjónarsöm, setjum okkur vel inn í þarfir viðskiptavina, finnum lausn sem hentar hverju sinni og höfum það að markmiði að uppfylla þarfir þeirra sem gera kröfur. Við viljum að okkar fólki líði vel í vinnunni og því skiptir það okkur máli að skapa faglegt og traust starfsumhverfi.

Viðskiptavinir Stefnu skipta hundruðum og er þar á meðal að finna nokkur af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins. Starfsfólk Stefnu er 40 talsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Forritun og hugbúnaðargerð
  • Prófanir 
  • Ráðgjöf til viðskiptavina Stefnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun kostur
  • Þekking og reynsla af vefforritun
  • 5 ára starfsreynsla af forritun og hugbúnaðarþróun nauðsynleg
Auglýsing birt21. desember 2023
Umsóknarfrestur12. janúar 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Glerárgata 34, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar