
Rafal ehf.
Rafal er leiðandi í þróun, framleiðslu og uppbyggingu raforkuinnviða með yfir 40 ára reynslu í faginu. Við sérhæfum okkur í hönnun, smíði og samsetningu hátæknilausna, þar á meðal tengivirkja, dreifistöðva, spenna, ljósleiðaraneta, snjalllausna og götulýsingar fyrir veitu og orkufyrirtæki, stóriðju og sveitarfélög. Við erum vel búin sérhæfðum búnaði og tökum að okkur bilana- og ástandsgreiningar auk prófana fyrir rafveitur.
Í dag starfa um 150 starfsmenn. Rafal býður upp á traustan og dýnamískan vinnustað þar sem vöxtur og velferð starfsfólks er höfð að leiðarljósi.

Ertu sérfræðingur í spennum, olíugreiningum og há- og lágspennubúnaði?
Við leitum að rafmagnsverkfræðingi eða rafmagnstæknifræðingi til að styrkja teymið okkar við greiningu og ástandsmat raforkubúnaðar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni
- Greining og ráðgjöf vegna bilana í aflspennum og dreifispennum.
- Yfirferð og túlkun á mæligögnum, t.d. DGA, rafrýmdarmælingum, hlutfallsmælingum og hitamyndum.
- Úrvinnsla og greining á olíusýnum.
- Þátttaka í ástandsgreiningu spenna og háspennubúnaðar.
- Eftirlit, skráning og skýrslugerð til viðskiptavina.
- Stuðningur við verkstæði og verkefnastjóra við þjónustu, prófanir og verklagsgerð.
- Þátttaka í innleiðingu nýrra greiningartækja, t.d. olíugreininga, skynjara og vöktunarbúnaðar.
- Verkefni séu unnin skv. gæða- og öryggismarkmiðum
Menntunar- og hæfniskröfur
- BSc/MSc í rafmagnsverkfræði eða rafmagnstæknifræði.
- Hæfni í greiningarvinnu og úrvinnslu gagna.
- Þekking eða áhugi á: spennum, olíugreiningum og há- og lágspennubúnaði
- Færni í skýrslugerð og framsetningu gagna.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Færni í samskiptum og teymisvinnu með tæknifólki og viðskiptavinum.
Fríðindi í starfi
- Vandað og öruggt vinnuumhverfi
- Tækifæri til að starfa við spennandi og krefjandi verkefni
- Góður starfsandi og stuðningur innan teymisins
- Niðurgreiddur hádegisverður
- Íþróttastyrkur
- Árlegar heilsufarsmælingar
Auglýsing birt7. apríl 2026
Umsóknarfrestur19. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hringhella 9, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
RafvirkjunTæknifræðingurVerkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Rafvirki í tæknideild
Coca-Cola á Íslandi

Rafvirki farangurskerfis
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Tengdu þig við okkur - rafvirki í Borgarnesi
Rarik ohf.

Rafvirki
Raf-X

Machine Designer
Embla Medical | Össur

Tæknimaður - Kæli- og frystibúnaður
Fossraf ehf

Ábyrgðaraðili stjórnkerfa í virkjunum ON
Orka náttúrunnar

Raflagnahönnuður á tæknisviði
Rafal ehf.

Rafvirki
Samherji hf.

Tæknimaður heilbrigðistækja
Fastus

Rafeindavirki / Rafvirki
Exton

Vélstjóri - Ægir Sjávarfang - Niðursuðuverksmiðja
Ægir Sjávarfang