
Samgöngustofa
Samgöngustofa er stjórnsýslustofnun samgöngumála sem annast eftirlit með flugi, siglingum og umferð. Á hverjum degi erum við að læra hvert af öðru og sinna viðskiptavinum af kostgæfni með það að markmiði að verða betri og betri.

Ertu sérfræðingur í rafmagni?
Siglingasvið Samgöngustofu óskar eftir ráða einstakling í fjölbreytt og spennandi starf við yfirferð og mat á rafkerfum skipa. Við bjóðum upp á þjálfun, starfið hentar því jafnvel nýútskrifuðum sem og reynslumeiri einstaklingum sem vilja byggja upp þekkingu og reynslu á þessu sviði. Sérhæfing á sviði skipatækni býður upp á mikla möguleika til framtíðar á spennandi vettvangi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirfara hönnun og útfærslu rafkerfa skipa með tilliti til reglna og staðla.
- Taka þátt í faglegum samskiptum við hönnuði, útgerðir og skoðunaraðila.
- Aðstoða við tæknilegt mat og þróa faglega þekkingu á sviði skipatækni.
- Aðstoð við úttektir á rafbúnaði skipa í samstarfi við aðra sérfræðinga.
- Þróun gæðakerfis skipadeildar í samstarfi við verkefnastjóra siglingasviðs.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, tæknifræði, rafiðnfræði, rafvirkjun, vélfræði eða sambærilegt.
- Áhugi á tæknimálum og vilji til að læra og tileinka sér nýja þekkingu.
- Jákvæðni og góð samskiptafærni.
- Frumkvæði og góð skipulagshæfni.
- Gott vald á íslensku og ensku í rituðu og töluðu máli
Auglýsing birt30. apríl 2026
Umsóknarfrestur11. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 2, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Þjónustumaður – uppsetningar og þjónusta
Héðinshurðir ehf

Tæknimaður óskast
Lyftulausnir ehf.

Vélvirki
Nói Síríus

Rafvirki - Eignabyggð
Eignabyggð ehf.

Rafvirki
Raflagnameistarinn ehf.

Sérfræðingur í innkaupum og útboðsgagnagerð
COWI

Tæknimaður / Viðgerðarmaður óskast til Inter ehf.
Inter ehf

Sérfræðingur óskast til starfa
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Verkstjóri rafmagns á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Rafvirki
Rafmagns og byggingamiðstöðin ehf

Framleiðslusérfræðingur steypuskála
Norðurál

Rafvirki óskast, fjölbreytt verkefni
Lausnaverk ehf