
Samgöngustofa
Samgöngustofa er stjórnsýslustofnun samgöngumála sem annast eftirlit með flugi, siglingum og umferð. Á hverjum degi erum við að læra hvert af öðru og sinna viðskiptavinum af kostgæfni með það að markmiði að verða betri og betri.

Sérfræðingur í deild leyfisveitinga og ökunáms
Samgöngustofa leitar að öflugum einstaklingi í stöðu sérfræðings í leyfisveitingum í deild leyfisveitinga og ökunáms á umferðarsviði stofnunarinnar. Starfið tilheyrir þriggja manna leyfisveitinga- og undanþáguteymi. Í deildinni er unnið að þróun og uppbyggingu verkefna og stafvæðingu ferla. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á umferðaröryggismálum, stöðugum umbótum og er góður liðsmaður.
Starfshlutfall er 100%. Um tímabundið starf til 12 mánaða er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnsýsla og utanumhald með leyfisveitingum fyrir bílaleigur, leigubílaakstur, farþega- og farmflutninga.
- Útgáfa undanþágu vegna stærðar og þyngdar ökutækja.
- Samskipti við hagsmunaaðila, aðstoð og upplýsingamiðlun.
- Skráning í skjalakerfi og frágangur gagna.
- Þátttaka í þróun og uppbyggingu verkefna, ferla og stafrænnar vegferðar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
- Rík þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum er skilyrði.
- Sjálfstæði, frumkvæði og metnaður í starfi.
- Góð almenn tölvukunnátta er skilyrði.
- Góð færni í íslensku og ensku í rituðu og mæltu máli.
Auglýsing birt30. apríl 2026
Umsóknarfrestur11. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 2, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Launafulltrúi
Securitas

Öflugur fulltrúi í innkaupadeild
Garðheimar

Gjaldkeri |Skrifstofuumsjón
Íslensk fjárfesting

Vörustjóri heilbrigðisvöru
Heilsa

Sumarstarf á skrifstofu á Húsavík
Eimskip

Fjölbreytt skrifstofustarf
LOGOS lögmannsþjónusta

Verkefnastjóri á mannauðssviði
Hrafnista

Þjónustufulltrúi í Vatnsskarðsnámu
Steypustöðin - námur ehf.

Sölusérfræðingur - Advise ehf.
Advise Business Monitor

Móttökuritari SÁÁ - sumarstarf
SÁÁ

Sumarstarf - Móttökufulltrúi
Útlendingastofnun

Sölu- og þjónustufulltrúi
Nói Síríus