

🍕 Ertu með réttu uppskriftina að góðri stemningu?
OCHE Reykjavík leitar að öflugum liðsmanni í eldhúsið!
Hjá OCHE snýst allt um góðan mat, frábæra stemningu og að hafa gaman bæði fyrir gesti og starfsfólk!
Eldhúsið er hjartað í húsinu og nú vantar okkur öflugan liðsmann sem kann að halda hlutunum gangandi þegar fjörið er í fullum gangi.
Ertu skipulögð manneskja, kannt að bretta upp ermarnar og hefur gaman af því að vinna með skemmtilegu fólki? Þá gætir þú verið akkúrat sú manneskja sem okkur vantar!
🍕 Hvað verður á þinni könnu?
-
Umsjón með vörupöntunum og birgðahaldi í eldhúsi
-
Sjá um daglegan undirbúning (prep)
-
Útbúa rétti samkvæmt uppskriftum og gæðastöðlum OCHE
-
Tryggja að gæði, hreinlæti og skipulag séu alltaf í góðu lagi
-
Fylgjast með vörunotkun, birgðastöðu og lágmarka matarsóun
-
Sjá sjálfstætt um daglegan rekstur eldhússins á vakt og tryggja hraða, gæði og góð vinnubrögð
🎯 Ert þú rétta hráefnið í teymið?
Við leitum að þér ef þú:
-
Hefur reynslu af eldhússtörfum
-
Ert skipulagður, sjálfstæður og með gott auga fyrir smáatriðum
-
Kannt að fylgja uppskriftum, verklagi og gæðastöðlum
-
Tekur frumkvæði og lætur verkin tala
-
Heldur haus þegar hitnar í kolunum
-
Hefur gaman af því að vinna með öðrum og mætir með jákvætt hugarfar
Reynsla af innkaupum og birgðahaldi er kostur
🔥 Hvað er í boði?
-
Skemmtilegur vinnustaður þar sem gleðin er hluti af deginum
-
Frábært teymi og líflegt vinnuumhverfi
-
Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa áhrif á daglegt skipulag
-
Starf þar sem skipulag, góð samvinna og jákvæðni skipta máli
🕒 Vinnutími
-
Þriðjudaga til föstudaga kl. 13:00–21:00.
-
Annan hvern laugardag.
-
Um 90% starfshlutfall
🎯 Tilbúin(n) að blanda þér í fjörið?
Ef þú hefur gaman af góðum mat, góðu fólki og skemmtilegum vinnudögum, þá viljum við heyra frá þér!
Sendu okkur umsókn í gegnum Alfreð og komdu í liðið hjá OCHE!
Íslenska
Enska










