

Aðstoðarfólk í eldhús - Sóltún Sólvangi í Hafnarfirði
Sólvangur hjúkrunarheimili í Hafnarfirði, hluti af Sóltúni heilbrigðisþjónustu, leitar að öflugum starfskrafti í fjölbreytt starf í eldhúsi. Um er að ræða framtíðarstarf í rúmlega 80% dagvinnu. Best væri ef viðkomandi gæti hafið störf í byrjun janúar 2027.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Undirbúningur og framleiðsla máltíða
- Tiltekt á vörum
- Frágangur eftir máltíðir
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Þekking á gæða- og hollustuháttum við framleiðslu og dreifingu matvæla er nauðsynleg
- Góð færni í samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði (C1/C2)
- Hreint sakavottorð er skilyrði
Starfskjör og fríðindi í starfi
- Um dagvinnu er að ræða
- Starfshlutfall er um 80%
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Íþróttastyrkur
- Samgöngustyrkur
- Fatapeningur
Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um.
Sóltún hefur á að skipa öflugum hópi starfsfólks með mikinn metnað fyrir vellíðan og lífsgæðum íbúa. Við leggjum áherslu á styðjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.
Um Sóltún heilbrigðisþjónustu
Sóltún heilbrigðisþjónusta er leiðandi þjónustuaðili á sviði velferðar- og öldrunarþjónustu á Íslandi. Markmið okkar er að auka velsæld og lífsgæði eldra fólks með fjölbreyttri og heildrænni heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á virðingu, sjálfstæði og stuðning í daglegu lífi.
Undir merkjum Sóltúns eru rekin hjúkrunarheimili í Reykjavík og Hafnarfirði, auk endurhæfingarþjónustu, dagdvalar og heimaþjónustu. Þjónustan er veitt af þverfaglegu teymi fagfólks sem vinnur saman að því að tryggja öryggi, vellíðan og gott líf íbúa og skjólstæðinga.
Hjá Sóltúni er lögð sérstök áhersla á nærandi samfélag þar sem umhyggja, fagmennska og jákvæð samskipti eru í fyrirrúmi. Starfsfólk er stærsta styrkleiki þjónustunnar og því er rík áhersla lögð á gott starfsumhverfi, samvinnu og tækifæri til starfsþróunar.
Íslenska










