Oche Reykjavik
Oche Reykjavik
Oche Reykjavik

Þjónustustjarna á OCHE 🎯

Elskarðu fólk, fjör og þegar allt er á fullu?

Þá gæti OCHE verið vinnustaðurinn fyrir þig!

Við erum í skemmtanabransanum og tökum það hlutverk alvarlega, en okkur finnst líka mikilvægt að hafa gaman í vinnunni!

Hjá OCHE snýst allt um að skapa frábæra upplifun. Við viljum að gestirnir okkar hlæi, skemmti sér og fari heim með bros á vör. Og það byrjar hjá starfsfólkinu okkar

Við leitum að hressum, jákvæðum og orkumiklum einstaklingum sem elska mannleg samskipti, kunna að vinna í teymi og fá aukna orku þegar mikið er að gera

Hvernig er að vinna hjá okkur?

Enginn dagur er eins!

Eina stundina tekurðu á móti gestum og kemur þeim í gang í pílunni. Þá næstu ertu að bera fram mat, útbúa drykki á barnum eða hjálpa hópi að gera kvöldið ógleymanlegt

Við köllum þetta allt hluta af því að skapa frábæra upplifun

Helstu verkefni og ábyrgð

Við leitum að þér ef þú:

  • Elskar að hafa gaman og smitar aðra af góðu skapi
  • Hefur ánægju af því að gleðja fólk
  • Blómstrar þegar mikið er að gera
  • Ert jákvæð(ur), sjálfstæð(ur) og ábyrg(ur)
  • Ert liðs manneskja sem er tilbúinn að stökkva í fjölbreytt verkefni
  • Hefur áhuga á þjónustu, afþreyingu og góðri stemningu

Reynsla af þjónustu eða barstörfum er kostur en viðhorfið skiptir mestu máli

Hvað bjóðum við?

Skemmtilegan vinnustað, frábæra samstarfsfélaga, fjölbreytt verkefni og vinnuumhverfi þar sem gleði og góð þjónusta fara saman

Hljómar þetta eins og þinn vinnustaður?

Þá viljum við endilega heyra frá þér!

Auglýsing birt31. október 2026
Umsóknarfrestur10. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Kringlan 4-12, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar