
Ert þú hress og drífandi, þá erum við að leita af þér
Velferðarsvið Kópavogsbæjar leitar að jákvæðum, hressum og drífandi starfsmanni í 60%-70% starfshlutfall í vaktavinnu og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.
Um er að ræða starf með einstaklingi sem þarf aðstoð við allar athafnir daglegs lífs. Viðkomandi notar hjólastól og er með eigin bíl með hjólastólalyftu og því er mikilvægt að starfsfólk sé með ökuréttindi.
Við leggjum áherslu á jákvæð samskipti, húmor og framúrskarandi þjónustu. Í boði er skemmtilegt og fjölbreytt starf.
Veita stuðning við athafnir daglegs lífs, s.s. að klæðast, matast, aðstoð með þjálfun og almenna virkni, innkaup og önnur tilfallandi verkefni.
Að styðja einstaklinginn til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
Að sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan hans, aðstoða hann varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni
Aðstoða með öll almenn heimilisstörf
Vera félagslegur stuðningur
Samvinna við yfirmenn, aðstandendur og annað starfsfólk.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum
Bílpróf er skilyrði
Reynsla og kunnátta í aðstoð við fatlað fólk er æskileg
Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Hreint sakavottorð
Aldurstakmark 20 ára
Íslenska
Enska










