Neyðarlínan
Neyðarlínan

Ert þú efni í góðan neyðarvörð?

Neyðarlínan óskar eftir að ráða neyðarverði til að annast svörun fyrir 112, greina erindi, leiðbeina og virkja viðeigandi viðbragðsaðila. Boðið er upp á krefjandi, ábyrgðarmikið en jafnframt gefandi framtíðarstarf. Unnið er á vöktum í sveigjanlegu vaktakerfi og í upphafi starfs fá neyðarverðir markvissa þjálfun í starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun
  • Fimm ára farsæl reynsla af almennum vinnumarkaði
  • Góð almenn tölvukunnátta og innsláttarhraði
  • Góð tök á íslensku og ensku. Kunnátta í öðrum tungumálum mikill kostur
  • Almenn þekking á landinu
  • Hreint sakavottorð

Persónulegir eiginleikar

  • Geta til að taka stjórn í erfiðum aðstæðum og halda skýrri hugsun undir álagi
  • Frumkvæði, sjálfstæði og áræðni í starfi
  • Góð greiningarhæfni
  • Ríkir samstarfshæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þjónustulund, samviskusemi og sveigjanleiki
  • Aðlögunarhæfni
Auglýsing birt1. október 2024
Umsóknarfrestur13. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar