Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Deildarstjóri launadeildar

Kópavogsbær auglýsir starf deildarstjóra launadeildar laust til umsóknar. Launadeild er staðsett á nýju fjármálasviði bæjarins og heyrir undir deildarstjóra fjármála. Sjö launafulltrúar starfa í deildinni og annast launavinnslu til um 3000 starfsmanna mánaðarlega.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist starfseminni.
Góð samstarfs- og samskiptahæfni.
Umtalsverð þekking og reynsla af launavinnslu.
Reynsla af stjórnun og áætlanagerð.
Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu.
Góð tölvukunnátta og framsetning tölfræðilegra upplýsinga.
Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stýrir daglegri starfsemi launadeildar.
Veitir stjórnendum ráðgjöf varðandi launavinnslu.
Ábyrgð á mánaðarlegri launavinnslu og skilum staðgreiðslu.
Ábyrgð á framkvæmd kjarasamninga sem unnið er eftir hjá Kópavogsbæ hverju sinni.
Veitir aðstoð við gerð kjarasamninga og samskipti við Samband Íslenskra sveitarfélaga vegna kjaramála.
Ábyrgð á gerð stjórnenda- og tölfræðiupplýsinga úr launagögnum.
Veitir ráðgjöf til stjórnenda um launakerfi bæjarins.
Kemur að undirbúningi og gerð launaáætlunar.
Er í nánu samstarfi við mannauðsstjóra og mannauðsráðgjafa fagsviða.
Auglýsing birt4. júlí 2020
Umsóknarfrestur19. júlí 2020
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar