

Deildarstjóri í leikskólann Álfatún
Leikskólinn Álfatún óskar eftir að ráða deildarstjóra á miðdeild.
Leikskólinn Álfatún er 5 deilda leikskóli á besta stað í Fossvoginum. Í leikskólanum eru 79 börn á aldrinum 1 – 6 ára.
Áherslur okkar eru málrækt – hreyfing og skapandi starf í gegnum leik. Áhugi okkar snýr að lýðræðismenntun, skapandi hugsun, menningu, dalnum okkar og umhverfisvernd.
Við leggjum áherslu á góðan starfsanda þar sem áhersla er lögð á liðsheild, heilsuvernd, jákvæð samskipti og lausnamiðaða hugsun.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni.
- Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
- Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
- Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum.
- Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni, s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl.
- Ber ábyrgð á að foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um þroska og líðan barnsins og þá starfsemi er fram fer á deildinni.
- Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun.
Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi. - Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
- Sjálfstæð vinnubrögð.
- Reynsla að vinnu með börnum.
- Reynsla af stjórnun.
- Góð íslenskukunnátta.
Ráðningarhlutfall og tími
- Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf ágúst/september eða eftir samkomulagi.
- Starfshlutfall er 100% .
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Þeir sem ráðnir eru til starfa í leikskólum Kópavogs þurfa að undirrita heimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá.
Umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2021.
Upplýsingar gefur Heiðbjört eða Linda í sími 4415501.
Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið [email protected]
Heimasíða leikskólans er: http://alfatun.kopavogur.is/











