

Deildarstjóri í Krummakot
Leikskólinn Krummakot óskar eftir að ráða deildarstjóra.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í desember eða eftir nánar samkomulagi.
Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi 12 km sunnan Akureyrar. Í skólanum eru nú
um 75 börn á fimm deildum.
Einkunnarorð skólans eru „Leikur er okkar nám“
Skólasýn er: Virðing, góðvild og festa þar sem gleði og fagmennska ríkir.
Krummakot flutti í glæsilegt nýtt húsnæði síðastliðið haust. Svæðið í
kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og
gönguleiðir víða. Við leggjum áherslu á Jákvæðan aga, Söguaðferð og
útikennslu. Allir nemendur hafa aðgang að góðri aðstöðu til hreyfingar í
íþróttahúsi og fá einnig tónlistarstund með tónlistarkennurum tvisvar í viku.
Nánari upplýsingar um starfsemi leikskólans má finna á heimasíðu:
https://krummakot.leikskolinn.is
- Ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati á daglegu starfi deildarinnar.
- Dagleg verkstjórn á deildinni.
- Stýra deildarfundum, skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks og tryggir góða upplýsingamiðlun innan deildar og til stjórnenda.
- Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn og/eða sérkennslu eftir þörfum.
- Umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna á deildinni.
- Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi eða öðru
kennaranámi sem veitir leyfisbréf til kennslu eða annarri háskólamenntun
sem nýtist í starfi. - Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar eru mikilvægir eiginleikar.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
- Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Íslenska










