Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Deildarstjóri í íbúðakjarna

Við á velferðarsviði Kópavogs leitum að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi til að taka þátt í að skipuleggja og leiða faglegt starf í samvinnu við forstöðumann. Í kjarnanum búa fjórir einstaklingar.

Um er að ræða 80 - 100% starf í vaktavinnu þar sem aðallega er unnið á dagvöktum og öðrum vöktum eftir samkomulagi. Um framtíðarstarf er að ræða og er starfið laust nú þegar.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfa, mennta- eða félagsvísinda.
Gerð er krafa um haldgóða reynslu af starfi með fötluðu fólki.
Þekking á meginhugmyndum er birtast í lögum um málefni fatlaðs fólks.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum, ábyrgðarkennd og frumkvæði.
Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á faglegu starfi í samvinnu við forstöðumann.
Gerð þjónustuáætlana.
Einstaklingsmiðaður persónulegur stuðningur við íbúa í þeirra daglega lífi, jafnt innan sem utan heimilis.
Gæta þess að réttindi íbúa séu virt og að starfað sé eftir lögum.
Samvinna við starfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.
Fríðindi í starfi
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Auglýsing birt13. janúar 2021
Umsóknarfrestur25. janúar 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Kópavogsbraut 41, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar