

Deildarstjóri í Heilsuleikskólanum Kór
Heilsuleikskólinn Kór sem staðsettur er í Baugakór í Kópavogi auglýsir stöðu deildarstjóra frá ágúst 2022.
Heilsuleikskólinn Kór er sjálfstætt starfandi er sex deilda skóli með um 112 börnum og starfar eftir Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur sem leggur áherslu á hreyfingu, sköpun og næringu. Kjörorð okkar er „heilbrigð sál í hraustum líkama“
Í stefnu skólans er lögð rík áhersla á jákvæða og umhyggjusama skólamenningu og öflugt lærdómssamfélag þar sem samvinna og gleði ríkir.
Aðrar áherslur:
Heilsueflandi leikskóli
- Tökum þátt í þróunarverkefni með Landlæknisembættinu um heilsueflandi leikskóla.
Leikur og sköpun
- Áhersla á umhyggjusamt námsumhverfi
- Efla hlutverka- og ímyndunarleik barnanna
- Fjölbreytt tækifæri til sköpunar í hvetjandi umhverfi
Jákvæð og uppbyggjandi samskipti
- „Blær“ vináttuverkefni er forvarnarverkefni gegn einelti ætlað leikskólum, fyrstu bekkjum grunnskóla og dagforeldrum.
Læsi og málörvun
- „Lubbi finnur málbein“, íslensku málhljóðin í brennidepli. Bókin um Lubba er hugsuð til málörvunar og hljóðanáms fyrir börn á aldrinum tveggja til sjö ára.
Umhverfismennt
- Grænfánaskóli síðan 2012
- Útinám, mikil áhersla á vettvangsnám og nærumhverfi okkar
Umsækjandi þarf að vera:
- Tilbúinn að tileinka sér stefnu og starfsaðferðir skólans.
- Samvinnufús og hefur góða hæfni í samskiptum.
- Tilbúinn að taka þátt í öflugri starfsþróun.
- Stundvís, samviskusamur, jákvæður, sýna frumkvæði og hafa ánægju af því að vinna með ungum börnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun
- Uppeldismenntaður starfsmaður
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða einstakling með aðra uppeldismenntun eða starfsreynslu.
Frekari upplýsingar veita Berglind R. Grétarsdóttir og Kolbrún G. Haraldsdóttir í síma 570 - 4940 eða á netfangið [email protected]
Umsóknarfrestur er til 12. maí 2022











