Dalskóli
Dalskóli
Dalskóli

Deildarstjóri - Dalskóli

Deildarstóri í leikskólahluta Dalskóla í Úlfarsársdal óskast til starfa í 100% stöðu

Ert þú í leit að starfi þar sem lögð er áhersla á sveigjanlega starfshætti, samvinnu í starfi og lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf? Dalskóli leikskólahluti leitar nú að starfskrafti sem býr yfir frumkvæði og sjálfstæði, og vill taka þátt í þróun leikskólans. Frá Dalskóla er stutt í náttúruna og tækifæri til náms í tengslum við náttúruna fjölmörg.


Dalskóli leikskólahluti er starfandi í tveimur húsum þar sem börn frá eins árs til þriggja ára dvelja í öðru húsinu en fjögurra til fimm ára dvelja í hinu sem er staðsettur í húsnæði sem er staðsett við grunnskólann. Í Dalskóla leikskólahluta er lögð áhersla á lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf er unnið eftir hugmyndafræði Reggio Emilia, þar sem barnið er í brennidepli og nær að njóta sín í leik og starfi.


Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t.:

  • Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
  • Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar
  • Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
  • Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Sveigjanleiki í samskiptum og samvinnu
  • Frumkvæði í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
  • Sundkort í allar sundlaugar Reykjavíkurborgar
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Forgangur barna í leikskóla
  • Afsláttur á dvalargjaldi
  • Menningarkort
  • Frír hádegismatur
Auglýsing birt21. desember 2025
Umsóknarfrestur10. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Úlfarsbraut 118-120 118R, 113 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar