

Leikskólakennari/ leiðbeinandi - Dalskóli leikskóli
Leikskólahluti Dalskóla
Leikskólakennari eða annað uppeldismenntað fólk óskast til starfa í leikskólahluta Dalskóla í Úlfarsárdal. Okkur vantar starfsmenn til að vinna með bæði yngri og eldri börnum. Í Dalskóla er unnið með hugmyndafæði Reggio Emilia þar sem skapandi starf er í forgangi með öllum börnum.
Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega starfshætti og samvinnu. Í skólanum ríkir viðhorf virðingar fyrir einstaklingnum og sérkennum hans. Dalskóli er einn af þekkingarskólum borgarinnar í leiðsagnarnámi. Í Dalskóla er mikið um þemabundið smiðjustarf í samfélags- og náttúrugreinum auk samvinnu kennara.
Í skólanum er lögð áhersla á lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði Reggio Emilia þar sem barnið er í brennidepli og nær að njóta sín í leik og starfi. Stutt er í náttúruna og nýtum við það með því að fara í skemmtilegar ævintýraferðir.
Dalskóli er stækkandi leikskóli og eru tvær elstu deildar leikskólans starfandi í nýju húsnæði sem staðsett er við grunnskólahluta. Á yngri deildum skólans eru 6 deildir en þar dvelja börn á aldrinum eins til þriggja ára. Húsnæði og öll aðstaða er til fyrirmyndar bæði fyrir börn sem og starfsmenn.
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
- Leikskólakennaramenntun, eða önnur uppeldismenntun æskileg
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Íslenska










