IÐAN fræðslusetur
IÐAN fræðslusetur

Deildarstj. Þróun þekkingar-framleiðsla

Vilt þú vinna við að skapa eitthvað nýtt?

Deildarstjóri Þróun þekkingar og framleiðsla

Við leitum að kraftmiklum stjórnanda sem mun, ásamt öflugum hópi starfsfólks, móta og leiða vinnu við að stórauka þátt þróunar, nýsköpunar og framleiðslu hjá IÐUNNI. Starfið er nýtt og heyrir undir framkvæmdastjóra.

Hlutverk okkar er að bæta hæfni fyrirtækja og starfsfólks í iðnaði og við trúum því að frjótt nýsköpunar- og tækniumhverfi IÐUNNAR sé einn af lyklum þess.

Áhersla okkar er á skýr hlutverk allra í liðinu, og mikla og dýnamíska samvinnu þar sem styrkleikar og áhugasvið hvers og eins fær notið sín best. Flest af því sem við gerum byggir á samstarfi þvert á skipulag.

Um þig:

  • Þú hefur brennandi áhuga á þróun, nýsköpun og framleiðslu.
  • Ert sókndjörf og drífandi manneskja.
  • Þú hefur menntun og stjórnunarreynslu sem nýtist í starfinu.
  • Átt auðvelt með að fá fólk til liðs við þig og draga fram það besta.
  • Hefur reynslu af þróun og framleiðslu.
  • Hefur stafræna styrkleika.
  • Ert framsækinn, skapandi og metnaðarfullur einstaklingur.
  • Þú veist hvað þú vilt.
  • Þú hefur hugsanlega þekkingu í kennslufræði og/eða stafrænum fræðslulausnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Framúrskarandi samskiptafærni, frumkvæði og árangursdrifni.
Forystuhæfileikar og reynsla af stjórnun.
Hafa góða þekkingu og hæfni í stafrænum lausnum.
Þekking í kennslufræði og/eða stafrænum fræðslulausnum er kostur.
Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
Þekking og reynsla af verkefnastjórnun.
Jákvæðni og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni.
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á árangri deildarinnar.
Móta framboð náms og þjónustu í takt við breytilegar þarfir iðnaðarins.
Framleiðsla náms, efni og námsleiða, og annarrar þjónustu.
Þróun stafrænna fræðslulausna.
Tryggja að búnaður styðji fjölbreytta miðlun efnis til ólíka hópa.
Þátttaka í erlendu samstarfi.
Auglýsing birt8. apríl 2022
Umsóknarfrestur20. apríl 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar