Grundarfjarðarbær
Grundarfjarðarbær

Byggingarfulltrúi á Snæfellsnesi

Sameiginlegt umhverfis- og skipulagssvið Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar, Grundarfjarðarbæjar og Eyja- og Miklaholtshrepps leitar að kraftmiklum byggingarfulltrúa til að halda utan um byggingarmál og verklegar framkvæmdir í sveitarfélögunum þremur. Á sviðinu er lögð áhersla á vandað faglegt starf og þróun, öflugt samstarf og góða þjónustu.

Byggingarfulltrúi starfar náið með skipulagsfulltrúa, sem jafnframt er sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs og næsti yfirmaður byggingarfulltrúa.

Starfsaðstaða er í Ráðhúsunum í Stykkishólmi og Grundarfirði en auk þess kallar starfið á ferðir og fundi í Eyja- og Miklaholtshreppi, en um hálftíma akstur er milli þessara staða.

Menntunar- og hæfniskröfur
Skilyrði:
Háskólamenntun á sviði skipulags- og byggingarmála sbr. 8 gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010
Réttindi til að starfa sem byggingarfulltrúi eða getur aflað réttindanna innan sex mánaða
Góð tölvukunnátta.
Góð færni í íslensku.
Stjórnunarhæfileikar og leiðtogafærni.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og lausnamiðuðum hugsun.
Frumkvæði, fagmennska og samviskusemi og einlægur áhugi á málefnasviðinu.
Æskilegt:
Þekking á lögum um mannvirki, byggingarreglugerð og skipulagslögum.
Þekking á góðum stjórnsýsluháttum og reynsla sem nýtist í starfi.
Reynsla af stefnumótun á málefnasviðinu.
Reynsla af stjórnun starfsmanna og verkefnastjórnun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leiðir faglega þróun og stefnumótun í byggingarmálum og verklegum framkvæmdum.
Sinnir lögbundnu hlutverki byggingarfulltrúa skv. viðeigandi löggjöf, ber þ.á.m. ábyrgð á afgreiðslufundum byggingarfulltrúa og undirbúningi byggingarmála í fagnefndum sveitarfélaganna.
Ber ábyrgð á daglegri starfsemi í byggingarmálum og verklegum framkvæmdum í samstarfi við verkstjóra áhaldahúsa og umsjónarmenn fasteigna.
Er yfirmaður starfsmanna í áhaldahúsum og eignaumsýslu og hefur yfirumsjón með nýframkvæmdum og viðhaldi.
Ber ábyrgð á gerð verk- og kostnaðaráætlana, gerð útboðsgagna og samningsgerð við verktaka og hönnuði og eftirliti með byggingarframkvæmdum og öðrum verklegum framkvæmdum sveitarfélaganna.
Ber ábyrgð á frágangi og úthlutun lóða, skráningu fasteigna, leigu- og lóðaleigusamningum.
Hefur umsjón með gjaldtöku, skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa.
Tekur við og sinnir ýmsum fyrirspurnum um byggingarmál og verklegar framkvæmdir í samvinnu við sviðsstjóra og/eða bæjarstjóra.
Sinnir ýmsum öðrum tilfallandi verkefnum að beiðni yfirmanns um byggingartengd málefni.
Auglýsing birt11. nóvember 2022
Umsóknarfrestur25. nóvember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar