
Bóklega
Bóklega er tæknimiðuð bókhaldsstofa í Reykjavík. Við sjálfvirknivæðum bókhaldið með bankatengingum, OCR og rafrænum skilum við Skattinn, svo viðskiptavinir fái nákvæmar tölur í rauntíma. Lítið teymi, gott vinnuumhverfi og áhersla á vönduð vinnubrögð.

Bókari óskast hjá Bóklega
Bóklega er ungt íslenskt fjártæknifyrirtæki og er að ráða sinn fyrsta bókara. Við leitum að manneskju með góða reynslu af bókhaldi sem getur gengið í verkin án handleiðslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þú sérð um bókhaldið frá A til Ö: færslur, afstemmingar, VSK-skil, mánaðar- og ársuppgjör, launavinnslu og samskipti við viðskiptavini. Þú aðstoðar okkur við val á verkfærum og mótar með okkur verkferla.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umfangsmikil reynsla af bókhaldi. Viðurkenning sem bókari eða háskólapróf er kostur en ekki skilyrði ef reynslan er næg.
- Reynsla af uppgjörum, VSK-skilum og launavinnslu.
- Áhugi á tækni og nýjum verkfærum.
- Sjálfstæð vinnubrögð og góð enskukunnátta.
Fríðindi í starfi
- Samkeppnishæf laun og árangursbónus.
- Sveigjanlegan vinnutíma — við leggjum áherslu á afköst fremur en viðveru.
- Hágæða búnaður.
- Tækifæri til að móta starf.
Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur8. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sundaborg 5
Starfstegund
Hæfni
Viðurkenndur bókari
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starf á Fjármálasviði
Torcargo

Sumarstarf á fjármálasviði
Borealis Data Center ehf.

Bókari á skrifstofu fjármála - Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri

Innheimtufulltrúi
Sveitarfélagið Skagafjörður

Tæknilegur bókari
Sessor

Sumarstarf á fjármálasviði
Arctic Adventures

Sérfræðingur á fjármálasviði
Arctic Adventures

Sumarstarf fyrir háskólanema - fjármálasvið
Brú lífeyrissjóður

Bókari/uppgjörsaðili
HSE Bókhald & Uppgjör ehf.

Almenn umsókn hjá Fagkaupum
Fagkaup ehf

Bókari/bókhaldsfulltrúi óskast til starfa
Heilsuvernd

Fjársýslusvið: Sumarstarf í bókhaldsdeild
Akureyri