Heilsuvernd
Heilsuvernd
Heilsuvernd

Bókari/bókhaldsfulltrúi óskast til starfa

Heilsuvernd óskar eftir að ráða viðurkenndan bókara í fullt starf í fjölbreytt verkefni. Við leitum að metnaðarfullum og áreiðanlegum bókara/bókhaldsfulltrúa sem hefur jákvæðni og lipurð í samskiptum að leiðarljósi og vill vera hluti af góðu teymi.

Heilsuvernd er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Heilsuvernd er einkarekið og ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, almennri heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir hjúkrunarheimili. Markmið Heilsuverndar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg færsla kostnaðarbókhalds
  • Flokkun, undirbúningur og skipulag gagna sem tengjast bókhaldsvinnu
  • Tilfallandi útreikningar, aðrar afstemmingar
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðurkennd bókaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er æskileg
  • Haldgóð reynsla af vinnu við bókhald
  • Góð almenn tölvukunnátta og öguð vinnubrögð
  • Góð þekking á bókhaldskerfum
  • Nákvæmni, sjálfstæði og ábyrgð í starfi
  • Góð Íslenskukunnátta er æskileg
Auglýsing birt13. apríl 2026
Umsóknarfrestur3. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Urðarhvarf 14, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar