

Innheimtufulltrúi
Skagafjörður óskar eftir að ráða metnaðarfullan og lausnamiðaðan einstakling í starf innheimtufulltrúa. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Markmið og tilgangur starfsins er að tryggja áreiðanlega, faglega og skilvirka innheimtu gjalda sveitarfélagsins, með góðum samskiptum við íbúa og fyrirtæki og með ábyrgri meðhöndlun upplýsinga og krafna.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón með daglegri innheimtu sveitarfélagsins.
- Útsending reikninga og greiðsluseðla.
- Eftirfylgni vegna vangoldinna gjalda og gerð greiðsluáætlana.
- Umsjón með frjálsri og/eða lögfræðilegri innheimtu í samstarfi við innheimtuaðila.
- Skráning greiðslna og innheimtuleiðréttinga.
- Greining og samþætting upplýsinga úr bókhaldskerfum og reglulegar afstemmingar.
- Samskipti við íbúa, fyrirtæki og innri aðila vegna innheimtumála.
- Þátttaka í umbótaverkefnum, rafrænum ferlum og innra eftirliti.
- Önnur skyld störf samkvæmt ákvörðun yfirmanns.
Hæfnikröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af innheimtu-, bókhalds- eða fjármálastörfum er æskileg.
- Góð kunnátta í notkun bókhalds- og innheimtukerfa er kostur.
- Mjög góð tölvukunnátta, sérstaklega í Excel.
- Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli.
- Nákvæmni, skipulagshæfni og ábyrg vinnubrögð.
- Frumkvæði, þjónustulund og góð samskiptafærni.
- Hreint sakavottorð.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs í síma 455 6000 eða með tölvupósti á netfangið [email protected].
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf)
Umsókn skal fylgja:
- greinargóð ferilskrá
- prófskírteini
- stutt kynningarbréf þar sem fram kemur ástæða umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfnikröfur
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun liggur fyrir.
Íslenska










