Borealis Data Center ehf.
Borealis Data Center ehf.

Sumarstarf á fjármálasviði

Við hjá Borealis Data Center óskum eftir að ráða sumarstarfsmann með reynslu af bókhaldi til starfa á fjármálasviði félagsins fyrir tímabilið maí/júní til ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn bókhaldsstörf
  • Færsla fjárhagsbókhalds í rafrænum lausnum
  • Afstemmingar og frávikagreiningar
  • Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði

Hæfniskröfur

  • Reynsla og þekking á bókhaldi
  • Reynsla af vinnu í Business Central
  • Gott vald á ensku og íslensku
  • Sjálfstæð vinnubrögð

Um Borealis Data Center

Borealis Data Center var stofnað árið 2014 og rekur í dag fjögur gagnaver á Íslandi og í Finnlandi. Frá upphafi hefur markmið Borealis verið að veita framúrskarandi, örugga og sjálfbæra þjónustu til viðskiptavina okkar. Við vinnum með viðskiptavinum víða að úr heiminum að því að bjóða sveigjanlegar gagnaverslausnir sem styðja við rekstur framtíðarinnar.

Hjá Borealis Data Center leggjum við ríka áherslu á fjölbreytileika og inngildingu á vinnustaðnum og því hvetjum við alla, óháð kyni eða bakgrunni, til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl 2026.

Frekari upplýsingar veitir Birna Dís Bergsdóttir, HR Coordinator, [email protected]

Farið verður yfir umsóknir jafnóðum og þær berast.

Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur29. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfstemmingPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.ViðskiptafræðingurPathCreated with Sketch.Viðurkenndur bókari
Starfsgreinar
Starfsmerkingar