UPS Express ehf.
UPS á Íslandi
Express ehf. er umboðsaðili United Parcel Service á Íslandi. UPS er stærsta og öflugasta hraðsendingafyrirtæki heims með þjónustunet til rúmlega 220 landa um allan heim.
Í samvinnu við UPS býður Express ehf. hraðsendingaþjónustu inn og út úr landinu eins og best gerist á Íslandi. Undanfarin ár hefur UPS verið í mikilli sókn í Evrópu og er nú orðið leiðandi fyrirtæki á þeim markaði. Daglega eru afhentir tæplega 16 milljónir pakka um allan heim.
Í gegnum öflugt samskiptanet UPS er auðvelt að sjá hvaða sendingar eru á leið til landsins eða hvar þær eru staðsettar á leið til þín og auðvelt er að rekja sendinguna frá upprunalandi til ákvörðunarstaðar
UPS er elsta hraðsendingafyrirtæki í heiminum, stofnað í Bandaríkjunum árið 1907 og státar af meiri reynslu en nokkurt annað hraðsendingafyrirtæki. Í upphafi starfaði það aðeins innan Bandaríkjanna en færði fljótlega út þjónustusviðið og sinnir nú öllum hlutum heimsins. UPS er í dag áttunda stærsta flugfélag í heimi með 282 flugvélar á sínum snærum.
Hjá UPS starfa rúmlega 427.700 starfsmenn um heim allan, sem leggjast á eitt um að veita þér hraða og góða þjónustu. Fyrirtækinu hefur hlotnast fjöldinn allur af viðurkenningum fyrir þá góðu þjónustu sem það veitir og hefur í 15 skipti í röð verið valið ,,Americas best transportation company'' samkvæmt tímaritinu FORTUNE.
Bílstjóri UPS
BÍLSTJÓRAR ÓSKAST TIL STARFA
ATH Staðsetning: Keflavíkurflugvöllur
- Meðal verkefna bílstjóra eru útkeyrsla sendinga á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu. Innheimta greiðslna og samskipti við viðskiptavini.
Almennar Hæfniskröfur:
- Mikilvægt er að umsækjendur séu jákvæðir og þjónustulundaðir.
- Geta til að koma máli sínu á framfæri í töluðu máli.
- Hæfni og vilji til að gera betur í dag en í gær
- Geta til að vinna vel í hóp og undir pressu
- Sveigjanleiki
Aldurstakmark er 18 ár. Vinsamlega sendið umsókn í gegnum heimasíðu https://jobs.50skills.com/express/is
Menntunar- og hæfniskröfur
Ökuréttindi
Auglýsing birt30. ágúst 2024
Umsóknarfrestur11. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Fálkavöllur 7, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
Almannatengsl (PR)JákvæðniMannleg samskiptiÚtkeyrslaÞjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Part-Time | Tow Truck Driver (BE or CE license required)
Lotus Car Rental ehf.
Kranamaður óskast - We are looking for a crane operator
Einingaverksmiðjan
Heilsuhúsið - Sala og ráðgjöf
Heilsuhúsið
Sölufulltrúi - Lagnaverslun Breidd
Byko
Starfsmaður á þjónustuver óskast
AB Varahlutir
Mötuneyti starfsfólks í Skarðshlíðarskóla
Skólamatur
Leiðsögn í Aurora Basecamp/ Guiding in Aurora Basecamp
Aurora Basecamp
Starfsmaður á verslun/lager í Hafnarfirði
Ferro Zink hf
Hraunvallaskóli - mötuneyti
Skólamatur
Afgreiðsla - Mosfellsbæ
Mosfellsbakarí
Hafnarfjörður - mötuneyti starfsfólks í grunnskóla
Skólamatur
Rammagerðin-Reykjavík
Rammagerðin