
Eimskip
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi. Við höfum verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914 og rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.
Hjá Eimskip er lögð sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga.

Bílstjóri í innanbæjarakstur í Reykjavík
Eimskip Reykjavík leitar að þjónustuliprum og ábyrgum meiraprófsbílstjóra í framtíðarstarf. Vinnutími er kl. 7-15 á virkum dögum.
Við leitum að einstaklingi sem hefur metnað til að skila árangri, vinnur vel í teymi og byggir traust í samskiptum – í takt við gildi Eimskips: árangur, samstarf og traust.
Hjá Eimskip Reykjavík er nýlegur floti flutningabíla sem er vel viðhaldið og allur aðbúnaður til fyrirmyndar. Mikil áhersla er á þjálfun og öryggismál hjá Eimskip.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vörudreifing Reykjavík og nágrenni
- Lestun og losun hjá viðskiptavinum
- Jákvæð samskipti og framúrskarandi þjónusta til viðskiptavina
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meirapróf C er skilyrði og CE er kostur
- Réttindi til aksturs í atvinnuskyni er skilyrði
- Lyftarapróf er kostur
- ADR réttindi er kostur
- Góð íslensku og/eða ensku kunnátta
- Geta til að vinna undir álagi
- Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð líkamleg færni
Fríðindi í starfi
-
Heitur matur í hádeginu, fjölbreytt verkefni og góður starfsandi í samhentu teymi.
-
Aðgangur að öflugu starfsmannafélagi sem m.a. rekur frábær orlofshús um allt land.
- Heilsu- og hamingjupakki sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira.
Auglýsing birt15. janúar 2026
Umsóknarfrestur25. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 15, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMeirapróf CÖkuréttindiSamviskusemiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Vörubílstjórar í snjómokstur
Heflun ehf

Tímabundin störf í nóvember og desember.
Dropp

Bílstjóri - Sölufólk Sómi
Sómi

Starfsmaður við svellagerð og húsvörslu
Skautahöllin Akureyri

Blönduós - Starfsmaður í afgreiðslu og dreifingu
Pósturinn

Meiraprófbílstjóri óskast framtíðarstarf
Jarðtækni

Bílstjóri á Bílaflutningabíl
Go Leiga

Reykjavík: Meiraprófsbílstjóri á dælubíl - Stífludeild
Íslenska gámafélagið ehf.

Meiraprófsbílstjóri með reynslu / CE driver with experience - Einingaverksmiðjan
Einingaverksmiðjan

Bílstjóri með meirapróf óskast í dagdvöl Sunnuhlíðar
Sunnuhlíð

Akureyri - Olíubílstjóri
Skeljungur ehf

Meiraprófsbílstjóri á Selfossi
Samskip