
Go Leiga
Go Leiga var stofnuð árið 2014 og hefur á þeim tíma vaxið og fest sig í sessi sem ein af stærri bílaleigum landsins. Frá upphafi hafa yfir 500.000 ferðamenn ferðast um Ísland á bíl frá fyrirtækinu og notið þess að upplifa landið á eigin forsendum.
Fyrirtækið rekur vörumerkin Go Leiga, Go Campers, Go Car Rental og Saga Car Rental og býður upp á fjölbreytt úrval bíla fyrir mismunandi þarfir. Áhersla er lögð á að bjóða örugga og áreiðanlega bíla ásamt góðri þjónustu sem gerir ferðalagið einfalt og þægilegt.
Þó að stór hluti starfseminnar snúist um ferðamenn þjónustar Go Leiga einnig heimamarkaðinn með ýmsum lausnum. Þar má meðal annars nefna rekstrarleigu, langtímaleigu og vetrarleigu, auk sendibílaleigu fyrir þá sem þurfa á stærri bílum að halda til flutninga eða verkefna.
Hjá Go Leigu er lögð áhersla á vinalegt starfsumhverfi og góðan starfsanda sem endurspeglast í samskiptum við viðskiptavini. Gæðaþjónusta er í fyrirrúmi og umsagnir viðskiptavina bera þess skýr merki.

Bílstjóri á Bílaflutningabíl
Go Leiga leitar að bílstjóra á bílaflutningabíl
Go Leiga leigir út bílaleigubíla og húsbíla undir merkjum Go Car Rental og Go Campers, auk langtímaleigu fyrir einstaklinga og fyrirtæki á Íslandi. Við leitum að traustum og skipulögðum bílstjóra sem sér um flutning á bílum flotans milli starfsstöðva, verkstæða, umboða og viðskiptavina.
Starfið hentar þeim sem hafa gaman af akstri, vinna sjálfstætt og vilja vera hluti af samheldnu teymi sem leggur áherslu á þjónustu, áreiðanleika og öryggi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Akstur bílaflutningabíls með bíla og húsbíla milli starfsstöðva, verkstæða, umboða og annarra áfangastaða
- Fermingar og affermingar, þannig að bílar séu tryggilega festir og óskemmdir í flutningi
- Skáning á ástandi bíla við móttöku og afhendingu, meðal annars með myndum og skýrslum
- Daglegt eftirlit og umhirða flutningabílsins og tilkynning um bilanir eða viðhaldsþörf
- Samskipti við flotastjórn, verkstæði og samstarfsaðila um tímasetningar og skipulag ferða
- Tilfallandi verkefni, til dæmis akstur einstakra bíla þegar þörf krefur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meirapróf C, CE, C1E (vörubíll með eftirvagn)
- Gilt ökumannskort og endurmenntun atvinnubílstjóra
- Reynsla af akstri stórra ökutækja, reynsla af bílaflutningum er kostur
- Hreint sakavottorð og góð ökuferilsskrá
- Skipulögð, nákvæm og ábyrg vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Góð íslensku- eða ensku kunnátta
- Stundvísi og sveigjanleiki
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt og sjálfstætt starf á ferðinni um landið
- Vel viðhaldinn flutningabíl og góðan búnað
- Samheldið og jákvætt starfsumhverfi
- Góða þjálfun og stuðning í upphafi starfs
- Samkeppnishæf laun samkvæmt samkomulagi
Auglýsing birt8. október 2026
Umsóknarfrestur31. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaValkvætt
Staðsetning
Fuglavík 43, 230 Reykjanesbær
Skógarhlíð 16, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiDrifkrafturFrumkvæðiHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiNákvæmniÖkuréttindiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Meiraprófbílstjóri óskast framtíðarstarf
Jarðtækni

Reykjavík: Meiraprófsbílstjóri á dælubíl - Stífludeild
Íslenska gámafélagið ehf.

Meiraprófsbílstjóri með reynslu / CE driver with experience - Einingaverksmiðjan
Einingaverksmiðjan

Bílstjóri með meirapróf óskast í dagdvöl Sunnuhlíðar
Sunnuhlíð

Akureyri - Olíubílstjóri
Skeljungur ehf

Starfsmaður í steypuþjónustu
Jarðboranir

Meiraprófsbílstjóri á Selfossi
Samskip

Tækjamaður á Umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar
Akureyri

Starfstækifæri í jarðhitaborunum
Jarðboranir

Meiraprófsbílstjórar
Bifreiðastöð Þórðar ehf

Ökuleiðsögumaður/Prívat Lúxus ferðir
Deluxe Iceland

Framleiðsla - Precast Production Workers - Akranes
BM Vallá