

Bílstjórar á höfuðborgarsvæðinu, kvöldvakt - sumarstarf
Pósturinn leitar að bílstjórum í útkeyrslu á höfuðborgarsvæðinu í sumar. Starfið felur í sér að koma sendingum til viðskiptavina og vinnutíminn er kl. 17:30-22:30.
Óskað er eftir því að ferilskrá fylgi með umsóknum og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 20. apríl. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Hæfniskröfur:
- Bílpróf er skilyrði
- Íslensku- eða enskukunnátta
- Skipulögð vinnubrögð
- Stundvísi og samviskusemi
- Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2026. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Haukur Ragnars Guðjohnsen, deildarstjóri, [email protected].
Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.
Íslenska
Enska


















