

Akranes - sumarstarf
Pósturinn leitar að starfsmanni í afgreiðslu, flokkun, dreifingu, útkeyrslu sendinga og önnur tilfallandi störf á pósthúsinu á Akranesi.
Vinnutími er alla virka daga kl. 8:00-16:05. Tímabil ráðningar er frá 26. maí til 7. ágúst 2026.
Hæfnikröfur:
- Bílpróf er skilyrði
- Sterk ábyrgðartilfinning
- Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
- Lausnamiðuð hugsun og jákvætt hugarfar
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta er æskileg
Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl. Athugið að aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvefinn en ekki í tölvupósti. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Eygló Dröfn Hraundal rekstrarstjóri, [email protected]
Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.
Íslenska










