

Patreksfjörður - Fulltrúi á pósthúsi
Pósturinn óskar eftir að ráða einstakling í framtíðarstarf fulltrúa á pósthúsinu á Patreksfirði.
Í starfinu felst m.a. uppgjör, almenn afgreiðsla, framsetning vöru, þrif og annað tilfallandi. Viðkomandi mun einnig aðstoða rekstrarstjóra við daglegan rekstur.
Um er að ræða fullt starf og vinnutíminn er 08:00-16:05 alla virka daga. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Hæfnikröfur:
- Góð samskiptafærni og þjónustulund
- Góð almenn tölvukunnáttu og ritfærni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Færni til að leysa úr vandamálum
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2026. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurborg Þórsdóttir rekstrarstjóri pósthússins á Patreksfirði - [email protected].
Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.
Íslenska
Enska










